Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2023 Dómsmálaráðuneytið

Áform í samráðsgátt um heimabruggun á áfengi til einkaneyslu

Með frumvarpi til breytinga á áfengislögum er ráðgert að afnema bann við heimabruggun á áfengi til einkaneyslu. Dómsmálaráðuneytið hefur lagt fram áformaskjal um þá lagasetningu í samráðsgátt stjórnvalda. Þó er gert ráð fyrir því að áfram verði óheimilt að framleiða áfengi til einkaneyslu með eimingu, en það er m.a. til samræmis við löggjöf á Norðurlöndunum. Þá verður einnig áfram óheimilt að stunda heimabruggun í því skyni að selja afurðina, enda er þá um atvinnustarfsemi að ræða sem er leyfisskyld samkvæmt lögum og reglum þar að lútandi.

Á undanförnum árum hefur orðið til rík menning heimabruggunar, þá sérstaklega á bjór, samhliða vexti handverksbrugghúsa sem hafa hafið starfsemi sína um land allt. Félög hafa verið stofnuð utan um heimabruggun áfengis til einkaneyslu, námskeið um slíka bruggun verið auglýst opinberlega og almenn umræða átt sér stað fyrir opnum tjöldum um athæfið. Almenningur virðist lítt upplýstur um að heimabruggun áfengis til einkaneyslu feli í sér refsiverðan verknað, sem bendir til þess að réttarvitund almennings kunni að vera á skjön við hið lögfesta og fortakslausa bann í 4. gr. áfengislaga. Því er talið tímabært að taka til skoðunar hvort enn séu rök fyrir því að skilgreina heimabruggun sem refsiverða háttsemi samkvæmt lögum.

Ekki er talið að áform þessi um lagabreytingar séu andstæð þeirri stefnu sem ríkt hefur um áfengismálefni hér á landi. Sem fyrr segir þá er heimabruggun áfengis víða stunduð á Íslandi þrátt fyrir gildandi bann og því ófyrirséð hvort heimabruggun muni aukast verði bannið afnumið. Umrætt bann virðist því hafa takmörkuð varnaðaráhrif í dag. Þá er einnig óljóst hvort að áfengisneysla muni aukast vegna lagasetningarinnar, en líklega myndi aukin neysla á áfengi sem er bruggað til einkaneyslu koma í stað annarrar neyslu áfengis, frekar en að vera viðbót við aðra neyslu.

Áformaskjal í samráðsgátt stjórnvalda

Umsagnarfrestur er til 2. febrúar og er öllum frjálst að senda inn athugasemdir. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum