Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frekari stækkun á aðstöðu FB til starfsnáms

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra - mynd

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í dag samning um frekari stækkun starfsnámsaðstöðu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Stækkunin nemur alls 2.400m2 og er fyrir starfsnám í húsasmíði, rafvirkjun og listgreinum.

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er einn stærsti starfsnámsskóli landsins og er aðsókn mikil, einkum á húsasmiðabraut og rafvirkjabraut. Brýn þörf er á stækkun aðstöðunnar og var samningur þess efnis undirritaður 30. apríl 2021.

Viðbótin nú nemur 245m2 og er áætlaður viðbótarkostnaður 135–140 m.kr. Kostnaðarskipting milli ríkis og borgar er sem fyrr 60% og 40%.

Mennta- og barnamálaráðuneytið vinnur nú að framkvæmdaáætlun um stækkun starfsnámsskóla á næstu 10 árum sem kynnt verður á næstunni. Samningurinn í dag er liður í þessum áformum stjórnvalda um bætta aðstöðu til starfsnáms í framhaldsskólum landsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum