Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Útlínur framtíðar – ný stefna í málefnum hönnunar og arkitektúrs

Kristrún Heiða Hauksdóttir, sérfræðingur hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu, Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Arnar Fells Gunnarsson, annar útlitshönnuður stefnunnar.    - mynd

„Framtíðarsýn okkar er að aðferðafræði hönnunar og arkitektúrs sé markvisst nýtt til þess að auka lífsgæði á Íslandi með áherslu á verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið í heild. Við getum aukið gæði, bætt heilsu og mannlíf, skapað áhugaverð störf og hraðað uppbyggingu og verðmætasköpun með því að virkja krafta sem sannarlega búa í íslensku hönnunarsamfélagi,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra sem kynnti nýja stefnu í málefnum hönnunar og arkitektúrs til ársins 2030 í Höfuðstöðinni sl. föstudag.

Leiðir að meginmarkmiðum stefnunnar tengjast fimm áherslusviðum sem nánar er fjallað um í stefnuskjalinu; verðmætasköpun, menntun framsækinna kynslóða, hagnýtingu hönnunar sem breytingaafls, sjálfbærri innviðauppbyggingu og kynningu á íslenski hönnun og arkitektúr.

„Þetta er gleðidagur því ný stefna stjórnvalda í málefnum hönnunar og arkitektúrs lítur dagsins ljós. Stefnan er einföld og markviss og byggir á þekkingu og vinnu breiðs hóps fag- og hagaðila og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Nýtt ráðuneyti menningar og viðskipta undir stjórn Lilju Alfreðsdóttur hefur sýnt málaflokknum mikinn áhuga og þar verið unnið frábært starf við mótun stefnunnar. Þetta er mikilvægur áfangi á vegferð okkar í að efla gæði, nýsköpun og breytingar sem byggja á hönnun og arkitektúr öllum til heilla,“ segir Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

Stefnan var mótuð í samvinnu við fjölda samstarfsaðila, og hag- og fagaðila gegnum Miðstöð hönnunar og arkitektúrs en miðstöðinni var komið á fót að frumkvæði stjórnvalda árið 2008 til þess að efla íslenska hönnun og arkitektúr sem listgreinar og grundvöll þeirra til atvinnusköpunar. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs er beintengd grasrót og atvinnulífi hönnunargreina en að henni standa níu fagfélög með alls 1200 félaga sem eiga og reka hana með stuðningi stjórnvalda gegnum menningar- og viðskiptaráðuneyti.

Ráðgert er að stefnunni verði framfylgt með tveimur aðgerðaáætlunum, en sú fyrri verður lögð fram sem þingsályktunartillaga síðar í vetur.

Stefna hönnunar og arkitektúrs til 2030.

  • Stefnan var gefin út með nokkrum útgáfum af forsíðu. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum