Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Beint streymi: Kynningarfundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar

Verkefnisstjórn rammaáætlunar hefur boðar til opins kynningarfundar um viðfangsefni sín. Fundurinn er haldinn í sal Þjóðminjasafns Íslands 15. febrúar kl. 10-12, en einnig er hægt að fylgjast með honum í beinu streymi.

Á fundinum gefur formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar yfirsýn yfir þá virkjanakosti sem eru til umfjöllunar í rammaáætlun, auk þess að fjalla um vinnu sem fram hefur farið á vegum verkefnisstjórnar varðandi greiningar við mat á staðarvali vindorkukosta.

Sérfræðingar Landmælinga greina frá nýjum tækjum sem þróuð hafa verið til að miðla landupplýsingum um rammaáætlun og vinna með þær. Einnig kynna formenn og fulltrúar faghópa störf og áherslur faghópa rammaáætlunar í vinnu sinni.

Upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg eftir á.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum