Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2023 Utanríkisráðuneytið

Ályktun um frið í Úkraínu hlaut afgerandi stuðning

Yfirgnæfandi meirihluti aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun um réttlátan og viðvarandi frið í Úkraínu. Tveggja daga neyðarfundi um Úkraínu í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna lauk nú fyrir stundu.

Féllu atkvæði þannig að 141 ríki kusu með ályktuninni, 7 gegn og 32 ríki sátu hjá. Var því ályktunin samþykkt með afgerandi meirihluta en 2/3 atkvæða þurfti til. Úkraína lagði fram ályktunardrögin með fulltingi Íslands og fjölda annarra ríkja.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti ræðu Íslands í umræðunni. Áréttaði Martin afstöðu Íslands og sagði innrás Rússlands í Úkraínu skýlaust brot á stofnsáttmála og mannréttindayfirlýsingu SÞ og grófa aðför að alþjóðakerfinu. Stríðið í Úkraínu og afleiðingar þess á heimsvísu væru alfarið á ábyrgð Rússlands og nauðsynlegt væri að láta það standa skil á gerðum sínum . Aðildarríki yrðu jafnframt að standa vörð um Úkraínu, alþjóðalög og gildi Sameinuðu þjóðanna. Þá ítrekaði ráðuneytisstjóri einarðan stuðning Íslands og samstöðu með Úkraínu, einnig í hlutverki sínu sem formennskuríki í Evrópuráðinu.

Neyðarfundurinn var haldinn í tilefni af því að rétt ár er liðið frá því Rússland réðist inn í Úkraínu. Var ályktunin sú sjötta sem lögð er fram í allsherjarþinginu um Úkraínu frá því árásarstríð Rússlands hófst hinn 24. febrúar 2022. Hafa allar ályktanirnar verið samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum