Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Meira og betra verknám – morgunverðarfundur

Mennta- og barnamálaráðherra boðar til morgunverðarfundar um stórtæka uppbyggingu starfsnáms í framhaldsskólum landsins fimmtudaginn 2. mars kl. 8:30-10:00 í Nauthóli.

Samkvæmt mati mennta- og barnamálaráðuneytisins á húsnæðisþörf í framhaldsskólum næstu tíu árin mun nemendum í starfsnámi fjölga verulega og nemendum í bóknámi fækka. Áform um uppbyggingu starfsnámsaðstöðu eru umfangsmikil og horfa til lengri tíma til að mæta þessari þörf.

Fundurinn hefst á morgunhressingu og kynningu Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, á áformunum. Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður með fundargestum og fulltrúum skólameistara, framhaldsskólanema, atvinnulífsins, Alþýðusambandsins og ráðuneytisins.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Honum verður streymt á Fésbókarsíðu ráðuneytisins. Þau sem mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig hér fyrir kl. 12 á miðvikukudag, 1. mars: 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum