Hoppa yfir valmynd
14. mars 2023 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra heimsóttu Úkraínu og funduðu með Volodomyr Zelensky

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu. - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, áttu fund með forseta Úkraínu, Volodomyr Zelensky, í Kænugarði í dag. Á fundinum ræddu þau stöðuna í Úkraínu, stuðning Íslands við Úkraínu og væntanlegan leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í maí en þar verða málefni Úkraínu í brennidepli. Forsætisráðherra greindi frá því að stuðningur Íslands til Úkraínu muni nema 2,25 milljörðum króna árið 2023, en í fyrra nam stuðningur Íslands 2,2 milljörðum króna.

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra komu til Úkraínu snemma í morgun en heimsóknin er í kjölfar boðs Zelenskys til forsætisráðherra. Markmið ferðarinnar er bæði að sýna úkraínsku þjóðinni stuðning og hins vegar að undirbúa leiðtogafundinn þar sem verður fjallað um mögulega tjónaskrá Evrópuráðsins vegna stríðsins og leiðir til að kalla rússnesk stjórnvöld til ábyrgðar.

Ráðherrarnir skoðuðu ummerki í Borodianka og Bucha þar sem stríðsglæpir hafa verið framdir. Þá lagði forsætisráðherra blómsveig að minningarvegg í Kænugarði. Ráðherrarnir áttu þar að auki fund með forsætisráðherra Úkraínu, Denys Shmyhal, varaforsætisráðherra landsins, Olhu Stefanishyna, utanríkisráðherranum, Dmytro Kuleba, og orkumálaráðherra landsins, German Galuschenko.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Formennsku Íslands í Evrópuráðinu ber upp á óvenjulegum tíma í Evrópu þar sem stríð geisar en Evrópuráðið er sú grundvallarstofnun álfunnar sem byggist á virðingu fyrir alþjóðalögum, lýðræði og mannréttindum. Við nálgumst þetta verkefni af auðmýkt enda er það stórt og mikilvægt. Heimsóknin til Kænugarðs er hluti af okkar skyldum sem formennskuríkis en á sama tíma viljum við sýna úkraínsku þjóðinni einlægan stuðning og samstöðu okkar.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra:

„Þessi heimsókn til borgarinnar skilur eftir sig mikla og djúpa virðingu fyrir því hugrekki sem úkraínska þjóðin hefur sýnt frá innrás Rússa. Að sjá með eigin augum grimmdina sem samfélagið hefur mátt þola er átakanlegt en á sama tíma er óbilandi sigurtrú og bjartsýni þjóðarinnar einstaklega uppörvandi. Ísland getur stutt fólkið hér bæði með framgöngu sinni á alþjóðlegum vettvangi en einnig með áframhaldandi efnahagslegum stuðningi við Úkraínu.“

Sameiginleg yfirlýsing Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Volodomyr Zelensky, forseta Úkraínu (á ensku)

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Olha Stefanishyna, aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum