Hoppa yfir valmynd
15. mars 2023 Matvælaráðuneytið

Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar

Fjölmennt var á opnum fundi sem var haldinn á vegum matvælaráðuneytsins á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Þar var kynnt ný skýrsla sem hópur sérfræðinga frá Landbúnaðarháskóla Íslands vann að beiðni Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um eflingu kornræktar á Íslandi.

Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjúnkt og brautastjóri búfræðibrautar hjá LbhÍ kynnti skýrsluna af hálfu hópsins og sat fyrir svörum ásamt þeim Agli Gautasyni, lektor við deild ræktunar og fæðu hjá LbhÍ og Hrannari Smára Hilmarssyni, tilraunastjóri í jarðrækt hjá LbhÍ.

„Þessi skýrsla er lykilgagn til þess að við getum tekið fyrstu skrefin í átt að eflingu kornræktar í landinu og þar með styrkt fjölbreyttari matvælaframleiðslu, aukið bindingu gróðurhúsalofttegunda og eflt hringrásarhagkerfið,“ sagði matvælaráðherra. „Það sem vakti mína athygli er að í skýrslunni er ekki tekin varnarstaða, heldur sett fram stórhuga áform um sókn til að við sem þjóð getum stuðlað að auknu fæðuöryggi“.

Fundinum var streymt, hægt er að sjá upptökuna hér. 

Skýrsla um eflingu kornræktar á Íslandi

  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 1
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 2
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 3
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 4
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 5
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 6
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 7
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 8
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 9
  • Fjölmennt á opnum kynningarfundi á nýrri skýrslu um eflingu kornræktar - mynd úr myndasafni númer 10

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum