Hoppa yfir valmynd
16. mars 2023 Matvælaráðuneytið

Ísland hyggst endurvekja aðild sína að NASCO

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra greindi í dag frá þeirri ætlun stjórnvalda að endurvekja aðild Íslands í dag að Laxaverndunarstofnuninni (NASCO). Matvælaráðherra greindi frá þessu á ráðstefnunni Salmon Summit sem haldin er í Reykjavík af verndarsjóði villtra laxastofna (NASF).

Laxaverndarstofnunin var stofnsett í Reykjavík árið 1984 í þeim tilgangi að stuðla að verndun, uppbyggingu og skynsamlegri nýtingu laxastofna í Norður Atlantshafi. Íslendingar drógu aðild sína að stofnuninni til baka í lok árs 2009 í kjölfar hruns íslenska bankakerfisins.

„Á þessu ári munum við gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gerast fullgildir aðilar að NASCO á ný árið 2024“ sagði matvælaráðaherra á þinginu í dag. „Ég tel mikilvægt, sem eitt af stofnríkjum NASCO, að við séum virk í umræðunni og gerum okkar besta til að efla enn frekar stöðu villtra laxastofna innan okkar vébanda“.

Núverandi meðlimir NASCO eru Bandaríkin, Bretland, Danmörk (fyrir Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Kanada, Noregur og Rússland. Þar að auki eiga yfir 20 hagsmunasamtök áheyrnaraðild að NASCO.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum