Hoppa yfir valmynd
17. mars 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Framtíðin svarar á íslensku: Kynningarfundur um máltækni með fulltrúum OpenAI

Menningar-og viðskiptaráðuneytið stendur fyrir opnum kynningarfundi um íslenska máltækni og gervigreind í Grósku, mánudaginn 20. mars kl. 13.  Meðal þátttakenda á fundinum verða Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og fulltrúar bandaríska tæknifyrirtækisins OpenAI.

Yfirskrift fundarins er „Framtíðin svarar á Íslensku“ og verður meðal annars farið yfir þá áfanga sem náðst hafa í íslenskri máltækni fyrir tilstilli máltækniáætlunar stjórnvalda sem var samþykkt árið 2019, og rætt um næstu skref.  Fundarstjóri er Snorri Másson. 

OpenAI gaf í vikunni út nýja uppfærslu á gervigreindar-mállíkaninu GPT þar sem íslenska var valin fyrst tungumála, utan ensku, í þróunarfasa þess. 40 sjálfboðaliðar hafa unnið að því síðustu vikur, á vegum máltæknifyrirtækisins Miðeindar í samstarfi við OpenAI, að þjálfa nýjustu útgáfuna, GPT-4, í því að svara betur á íslensku. Í dag er því hægt að eiga merkilega góð samskipti við mállíkanið á íslensku.

Næstu skref í máltækni

Hvar stendur Ísland þegar kemur að máltækni? Hvað gerist næst? Hverju mun gervigreindin breyta fyrir íslenskuna? Á viðburðinum verður árangur máltækniáætlunarinnar kynntur, fjallað um næstu skref í stafrænni vegagerð með máltækni og samstarfið við OpenAI kynnt nánar.

Fyrirtækið OpenAI var stofnað árið 2015 og er leiðandi í alþjóðlegri umræðu um opið aðgengi að gervigreindartækni, og ábyrga og örugga þróun hennar fyrir heimsbyggðina alla.  Anna Makanju, yfirmaður opinberrar stefnumótunar hjá OpenAI, og Angela Jiang, vörustjóri hjá OpenAI, verða gestir á viðburðinum.

Anna Makanju og Angela Jiang munu taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra og Vilhjálmi Þorsteinssyni, stofnanda og eiganda Miðeindar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum