Hoppa yfir valmynd
20. mars 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Vestmannaeyjabær tekur á móti 30 flóttamönnum

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Vestmannaeyjum. Samningurinn kveður á um að Vestmannaeyjabær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 30 flóttamönnum.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd hér á landi eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og að fólk fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, samfélagsfræðslu og námi, þar með talið íslenskunámi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir gleðiefni að Vestmannaeyjar taki á móti fólki á flótta. „Verkefnið er samfélagslega mikilvægt og það er ánægjulegt að sjá Vestmannaeyjabæ komi inn í það af fullum krafti.“

„Við hjá Vestmannaeyjabæ erum ánægð með þetta samkomulag þar sem það rammar inn með skýrum hætti þá þjónustu sem við veitum flóttafólki,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. „Það er mikil samstaða um það hér í Eyjum að sýna samfélagslega ábyrgð og við viljum gera vel varðandi móttöku og í öllu utan um haldi fyrir fólk sem er á flótta.“

Þetta er níundi samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl. Reykjavík reið á vaðið og síðan Árborg, Akureyri, Reykjanesbær, Hornafjörður, Hafnarfjörður, Múlaþing og Mosfellsbær.

Vestmannaeyjabær undirritaði einnig samning sem felur í sér að sveitarfélagið mun þjónusta umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ.e. fólk sem bíður eftir svari við verndarumsókn sinni. Vinnumálastofnun sér um þjónustu við þann hóp fólks hér á landi og sá samningur var því undirritaður af Írisi Róbertsdóttur fyrir Vestmannaeyjabæ og Gísla Davíð Karlssyni, sviðsstjóra hjá Vinnumálastofnun.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Við undirritunina. 

Íris Róbertsdóttir og Gísli Davíð Karlsson, sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun.

 

 

Staðsetning sveitarfélaga sem undirritað hafa samninga um samræmda móttöku flóttafólks. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum