Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2023 Matvælaráðuneytið

Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. apríl 2023:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 4,33%, úr 119,77 kr./ltr í 124,96 kr./ltr.

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 12. apríl 2023:

  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar almennt um 3,60%.

Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun í desember 2022. Frá síðustu verðákvörðun til marsmánaðar 2023 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 4,33%. Á sama tímabili hefur vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva hækkað um 2,74% og er þetta grundvöllur hækkunar heildsöluverðs auk hækkunar á afurðaverði.

Verðlagsnefnd búvara


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum