Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2023 Innviðaráðuneytið

Hermann Sæmundsson skipaður ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu

Hermann Sæmundsson - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur skipað Hermann Sæmundsson, stjórnmálafræðing og skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, í embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins. Hermann tekur við embættinu 1. maí nk. þegar Ragnhildur Hjaltadóttir lætur af störfum.

Hermann hefur starfað í Stjórnarráði Íslands frá því í október 1996 en þá réðst hann til starfa sem sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í félagsmálaráðuneytinu. Hann var skipaður í embætti skrifstofustjóra í sama ráðuneyti árið 2002. Frá 2004 til 2008 var hann fulltrúi félagsmálaráðuneytis og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis í sendiráði Íslands í Brüssel en tók við sem skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu að því loknu. Hermann var skipaður skrifstofustjóri skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu í ársbyrjun 2011 en við uppskiptingu þess um mitt ár 2017 tók hann stöðu skrifstofustjóra skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Hermann var skipaður skrifstofustjóri stefnumála í forsætisráðuneytinu í október 2021.

Hermann var settur ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneyti á árunum 2002 til 2004 og gegndi um langt skeið hlutverki staðgengils ráðuneytisstjóra. Hermann hefur því starfað í Stjórnarráði Íslands í hartnær 27 ár. Hann hefur samhliða embætti gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum í umboði ráðherra. Hermann býr því yfir mikilli og fjölþættri reynslu innan Stjórnarráðsins og íslenskrar stjórnsýslu.

Hermann er fæddur árið 1965, hann tók stúdentspróf frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra 1986, lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaraprófi frá Háskólanum í Árósum árið 1996 í stjórnsýslu- og stjórnmálafræði.

Fjórar umsóknir bárust um embættið sem var auglýst í janúar sl. Ráðgefandi hæfnisnefnd var skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Hermann væri hæfastur til að gegna embættinu. Eftir viðtöl ráðherra við umsækjendur og að teknu tilliti til álits hæfnisnefndar um hæfni umsækjenda var það ákvörðun ráðherra að veita Hermanni embættið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum