Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2023 Innviðaráðuneytið

Fræðslufundir fyrir sveitarstjórnarfólk um hinsegin málefni haldnir að nýju

Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufunda um hinsegin málefni í byrjun maí. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Þetta er í annað sinn sem fræðslufundir af þessu tagi eru haldnir en það var fyrst gert í nóvember á síðasta ári. Verkefnið er liður í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022-2025.

Hinsegin fólk þarf að eiga greiða leið að þjónustu í sínu nærumhverfi. Þjónusta og viðmót á að vera laust við fordóma og mismunun en bein og óbein mismunun og útilokun getur stafað af þekkingarskorti þeirra sem þjónustuna veita. Til að bæta stöðuna og draga úr fordómum og þekkingarskorti er mikilvægt að efla þekkingu kjörinna fulltrúa og starfsfólks sem sinnir þjónustu við almenning.

Fræðslan fer fram á fjarfundi (Teams) og í boði eru tvær tímasetningar:

  • Þriðjudagur 2. maí kl. 16
  • Miðvikudagur 3. maí kl. 16

Fræðslan tekur um klukkustund og er opin öllum kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum