Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár – beint streymi

Skýrsla starfshóps um stöðumat og áskoranir varðandi mat og endurmótun á tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár verður kynnt í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 13. apríl kl. 10. Hægt verður að fylgjast með kynningunni í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

Starfshópurinn var skipaður í kjölfar þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi í mars 2021. Hópurinn hefur skilað Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skýrslu sinni og verða niðurstöður hennar kynntar á fundinum.

Þar verða m.a. dregnar fram þær áherslur og verkefni sem nauðsynlegt er að halda áfram með, eða ráðast í innan málaflokksins á komandi árum til að auka seiglu íslensks samfélags og draga úr tjóni vegna náttúruvár, ekki síst vegna áhrifa loftslagsbreytinga.

 

 

Náttúruvá  - Stöðumat og áskoranir varðandi mat og endurmótun á tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum