Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Opið hús og dagskrá í Húsi íslenskunnar þann 20. apríl

Opið hús og dagskrá í Húsi íslenskunnar þann 20. apríl - myndKristinn Ingvarsson

Á sumardaginn fyrsta verður opið hús í  „Húsi íslenskunnar"

Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, sem hefur gengið undir nafninu „Hús íslenskunnar", verður vígt 19. apríl. Af því tilefni verður húsið opnað almenningi sumardaginn fyrsta, 20. apríl. 

Þennan dag geta gestir skoðað húsið áður en flutt er inn í það og starfsemi hefst. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem íslensk tunga verður í aðalhlutverki.

Húsnæðið mun hýsa starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands og verður miðstöð rannsókna og kennslu í íslenskum fræðum: tungu, bókmenntum og sögu. Þar verða jafnframt varðveitt frumgögn um íslenska menningu, þ.e. handrit, skjöl, orða- og nafnfræðisöfn og þjóðfræðasöfn. Í byggingunni eru ýmis sérhönnuð rými, svo sem fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum, vinnustofur kennara og fræðimanna, lesaðstaða fyrir nemendur, fyrirlestra- og kennslusalir og bókasafn með lesaðstöðu.

Allan daginn: 

  • Kvæðamaður skýtur upp kollinum víða um húsið.
  • Leiðsögn um aðra hæð hússins.
  • Myndlistarsýning: Hvernig blasa íslensku þjóðsögurnar við nemendum í íslensku sem öðru máli?
  • [ˈl̥jouðrɪtʏnastɔːva]: Íslenskunemar hljóðrita nafnið þitt.
  • Klikk-klikk-klikk-klikk-ding! Pantaðu ljóð hjá ritlistarnemum.
  • Kjóstu mesta skúrkinn í íslenskum bókmenntum.
  • Veldu skrýtnasta íslenska orðið.
  • Hýryrði 2023.
  • Talaðu við tækið: Miðeind kynnir nýja gervigreindarlausn á íslensku.

Stakir viðburðir:

  • 10.15 Kvæðabarnafjelag Laufásborgar kveður rímur.
  • 11.00 Arndís Þórarinsdóttir les fyrir börn og fullorðna úr bók sinni Bál tímans: Örlagasaga Möðruvallabókar í sjö hundruð ár.
  • 14.00 Jakob Birgisson uppistandari tekur tunguna í gegn.
  • 15.00 Una Torfadóttir tónlistarkona treður upp í bókasafni hússins.

Í fyrirlestrasal

  • 10.00 Upp úr holu íslenskra fræða: Stutt myndbönd um byggingu hússins.
  • 12.00 Málstofa: Rithöfundarnir Bergsveinn Birgisson og Arndís Þórarinsdóttir. Málstofustjórn: Margrét Eggertsdóttir
  • 13.00 Hvað er á seyði í Árnastofnun? Fræðimenn segja frá rannsóknum sínum. Málstofustjórn: Guðvarður Már Gunnlaugsson
  • 14.00 Hvað er á seyði í íslenskunni? Fræðimenn við Háskóla Íslands segja frá rannsóknum sínum. Málstofustjórn: Ásta Kristín Benediktsdóttir og Brynja Þorgeirsdóttir
  • 15.00 Upplestur: Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Brynja Hjálmsdóttir, Brynjólfur Þorsteinsson og Dagur Hjartarson lesa upp úr verkum sínum.
    Kynnir: Huldar Breiðfjörð

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum