Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Mynda starfshóp um málefni RÚV

Fjármála- og efnahagsráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra hyggjast setja á laggirnar þriggja manna starfshóp um málefni Ríkisútvarpsins (RÚV). Hópnum er ætlað að ljúka vinnu sinni eigi síðar en 1. júlí næstkomandi.

Markmið starfshópsins verði tvíþætt; annars vegar að skoða mögulegar leiðir og tillögur til að breyta eðli og umfangi auglýsingadeildar RÚV til að minnka umsvif ríkisfjölmiðilsins á auglýsingamarkaði, og hins vegar skoða möguleika á að létta lífeyrisskuldbindingum RÚV við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR).

„Vera Ríkisútvarpsins (RÚV) á auglýsingamarkaði hefur verið pólitískt bitbein hér á landi til fjölda ára. Þá hafa einkareknir fjölmiðlar gagnrýnt umsvif ríkisfjölmiðilsins á auglýsingamarkaði um árabil og þá skökku samkeppnisstöðu sem þau skapi á innlendum fjölmiðlamarkaði. Þó hefur verið á það bent, til að mynda í skýrslu nefndar um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla frá árinu 2018, að ekki sé sjálfgefið að hagur einkarekinna fjölmiðla vænkist með brotthvarfi RÚV af auglýsingamarkaði. Góðar líkur séu á því að auglýsingaféð leiti frekar úr landi og ofan í vasa alþjóðlegra tæknirisa á borð við Facebook, Google og YouTube, eins og þróunin hefur verið á undanförnum árum,“ segir meðal annars í minnisblaði sem lagt var fyrir á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag.

Í samantekt Hagstofunnar frá 7. desember 2022 kemur fram að greiðslur til erlendra aðila vegna birtingar auglýsinga hafi aukist samfellt undanfarin ár og nær tvöfaldast á tæpum áratug og þannig farið úr tæpum fimm milljörðum króna árið 2013 í tæpa 9,5 milljarða árið 2021. Tæplega helmingur þess fjár sem varið var til birtingar auglýsinga árið 2021 rann til erlendra aðila.

Hlutdeild RÚV í auglýsingatekjum innlendra fjölmiðla jókst á milli áranna 2020 og 2021, úr 17% í 19%, samkvæmt samantekt Hagstofunnar frá 16. desember 2022. Þá jukust tekjur RÚV, sem að mestu eru tilkomnar vegna sölu auglýsinga og kostana, um 372 milljónir króna milli ára og voru um 2,4 milljarðar króna á síðasta ári samkvæmt samstæðureikningi RÚV fyrir árið 2022.

„Þar sem ekki er fyllilega ljóst hvort brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði myndi skila tilætluðum árangri er ráðgert að koma á fót starfshópi sem skoði hvernig breyta megi eðli og umfangi auglýsingadeildar RÚV með það að markmiði að draga úr umsvifum ríkisfjölmiðilsins á auglýsingamarkaði. Þá skal starfshópurinn sömuleiðis skoða möguleika á að létta lífeyrisskuldbindingum RÚV við LSR, sem hefur reynst félaginu afar íþyngjandi.“

Í starfshópnum munu sitja þrír fulltrúar forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis, sem leiðir hópinn. Gert er ráð fyrir vinnunni verði lokið eigi síðar en 1. júlí n.k. svo unnt sé að leggja fram frumvarp á haustþingi ef þess gerist þörf.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum