Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Tillögur um aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíða kynntar í ríkisstjórn

Tillögur um aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíða kynntar í ríkisstjórn - myndStjórnarráðið

Þessi frétt hefur verið uppfærð.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag tillögur að aðgerðum til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Tillögurnar verða ræddar í næstu viku í ráðherranefnd um samræmingu mála ásamt fleiri aðgerðum á þessu sviði. Ríkisstjórnin mun síðan fjalla um niðurstöður ráðherranefndarinnar.

Misnotkun ópíóíðalyfja er vaxandi vandamál á heimsvísu. Ísland er þar ekki undanskilið og eru vísbendingar um aukinn ópíóðavanda hjá ungu fólki. Mikilvægt er að grípa strax inn í þessa þróun. Mikilvægar aðgerðir til að bregðast við þessu fela í sér aukið  aðgengi að  fjölbreyttri, gagnreyndri meðferð við vímuefnavanda og skaðaminnkandi úrræðum. Þar með taliðgagnreyndri viðhaldsmeðferð við ópíóðafíkn. Einnig þurfa aðgerðir gegn vímuefnavanda að fela í sér aukna fræðslu, forvarnir og heilsueflingu.

Ávanabinding ópíóíða er mikil og þekkt er að einstaklingar þróa hratt með sér þol og fíkn í lyfið sem aftur leiðir til þess að notaðir eru sífellt stærri og lífshættulegri skammtar. Öndunarbæling ópíóða er hættulegasta aukaverkunin og með notkun stórra skammta eykst áhætta á ofskömmtun og öndunarstoppi og eru þeir einstaklingar sem reykja eða sprauta ópíóíðum í æð í hvað mestri áhættu þessu tengdu.  

Nánari lýsing á aðgerðum:

  • Þróuð verði flýtimóttaka/viðbragðsþjónusta sem samstarfsverkefni SÁÁ, Landspítala og heilsugæslu þar sem einstaklingum í bráðum vanda er tryggt aðgengi að gagnreyndri heilbrigðisþjónustu á borð við fráhvarfsmeðferð, vímuefnameðferð eða viðhaldsmeðferð sem mætir þeirra þörfum. Áætlaður kostnaður er 50 m.kr. 
  • Tryggt verði greitt aðgengi  notenda að gagnreyndri lyfjameðferð við ópíóðafíkn þar sem m.a. er notuð lyf eins og buprenorphin, metadon og í sumum tilfellum önnur ópíóíðalyf. Áætlaður kostnaður 80 m.kr. 
  • Úrræði á vegum frjálsra félagasamtaka verði efld, s.s. Foreldrahúss, sem sýnt hafa fram á árangur á sviði viðbragðsforvarna og snemmtækra inngripa fyrir ungmenni sem sýna forstigseinkenni vímuefnavanda og aðstandenda þeirra, með það að markmiði að koma í veg fyrir þróun frekari vanda eða fíknisjúkdóm. Áætlaður kostnaður 30 m.kr.
  • Tryggt verði að neyðarlyfið Naloxon í nefúðaformi sem notað gegn ópíóðaofskömmtun sé aðgengilegt fólki á landsvísu án endurgjalds, bæði í gegnum skaðaminnkunarúrræði og á heilsugæslum landsins. Áætlaður kostnaður 10 m.kr.

Um ópíóíðalyf

Ópíóðar eru sterk verkjalyf notuð í læknisfræðilegum tilgangi. Dæmi um lyf/efni sem innihalda ópíóða eru heróín, metadon, fentanýl, oxýkódon, búprenorfín og morfín.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum