Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2023 Matvælaráðuneytið

Breytt nálgun við útrýmingu riðu

Íslenskt lambakjöt nýtur verndar landfræðilegra merkinga. - myndDL

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur fallist á tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferðafræði við útrýmingu riðuveiki. Tillagan hefur verið kynnt í ríkisstjórn, en hún felst í því að markvisst verði unnið að hraðari ræktun riðuþolins sauðfjársstofns á ræktunarsvæðum sem eru skilgreind sem áhættusvæði.

Samkvæmt greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands, sem unnin var að beiðni yfirdýralæknis, er unnt að hraða mjög ræktun fyrir verndandi arfgerðum með markvissum arfgerðargreiningum. Með því að ráðast í þessa vinnu minnka líkur á riðusmiti, með tilheyrandi kostnaði fyrir einstaklinga og afleiddum áhrifum á samfélög.

Tillagan felst einnig í því að Matvælastofnun yrði heimilt að undanskilja frá niðurskurði fé sem sýnt er fram á að beri verndandi arfgerð. Því fé yrði því haldið í einangrun á viðkomandi jörð. Á þennan hátt má rækta upp fjárstofn með verndandi arfgerð á riðusvæðum samhliða því að styrkja sjúkdómavarnir.

„Stjórnvöld munu gera það sem þarf til að styðja bændur við að rækta upp verndandi arfgerðir gagnvart riðu. Samkvæmt tillögunni verða yfir 80% ásetts fjár á mestu áhættusvæðunum ólíkleg til að veikjast af riðu eftir fimm ár og þar af leiðandi hverfandi líkur á niðurskurði,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Til að kveða megi niður þann vágest sem riðuveikin er þarf gott samstarf allra aðila, fjármögnun og afkastagetu við greiningar. Stefnt er að því að greina megi árlega 15 til 40 þúsund fjár og með þessum aðgerðum munu líkur á stórfelldum niðurskurði minnka hratt“.

Samkvæmt greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands nemur kostnaður við fyrrnefndar aðgerðir 567 milljónum á næstu 7 árum og verður sú fjármögnun tryggð.

Hér má sjá greinargerð Landbúnaðarháskólans.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum