Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2023

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 49.500
  2.  Gisting í einn sólarhring kr. 34.300
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.200
  4.  Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.600

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. maí 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2022.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum