Hoppa yfir valmynd
11. maí 2023 Matvælaráðuneytið

Rúmlega 93 milljónum úthlutað til þróunarverkefna búgreina

Rúmlega 93 milljónum úthlutað til þróunarverkefna búgreina - myndiStock/Karel Stipek

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað rúmum 93 milljónum króna til 27 þróunarverkefna í landbúnaði. Um er að ræða tólf verkefni í sauðfjárrækt, níu í nautgriparækt og sex í garðyrkju.

Úthlutunin er gerð að tillögu fagráða viðkomandi greina og framkvæmdanendar búvörusamninga. Tilgangur framlagsins er að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í fyrrnefndum búgreinum.

„Mikilvægi sjálfbærs landbúnaðar hefur sjaldnast verið meira en nú,“ sagði matvælaráðherra. „Því er mikilvægt að stjórnvöld hlúi að vaxtarsprotum greinarinnar eftir fremsta megni líkt og gert er með þessari úthlutun. Rannsóknir og þekking eru lykilatriði til að tryggja okkar fæðuöryggi til framtíðar“.

Úthlutanir voru sem hér segir:

 

Garðyrkja

Umsækjandi

Verkefni

4pphæð

Bændasamtök Íslands

Erlendir garðyrkjuráðunautar

24.186.648 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Jörð.is - Snjalltækjavæðing

1.041.333 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Kynnisferð til Danmerkur - kartöflubændur

2.558.000 kr.

Matís ohf

Grænmetisbókin - Vefrit Frá uppskeru til neytenda

1.150.720 kr.

Þórustaðir ehf

Kartöflur með lægra kolvetnisinnihald

1.000.000 kr.

Landbúnaðarháskóli Íslands

Áhrif lýsingar og CO2 auðgunar á vöxt uppskeru og gæði gróðurhúsatómata

7.000.000 kr.

 

Samtals

36.936.701 kr.

 

Sauðfjárrækt

 

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Lambadómar 2022

2.400.000 kr.

Tilraunastöð HÍ Keldum

Rannsókn á umhverfissmiti á riðubæjum

1.255.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Hvatastyrkir vegna arfgerðagreininga 2023 (riðurannsóknir)

10.070.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Utanumhald um feldfé í Fjárvís

1.000.000 kr.

Matís ohf

Fitusprenging í íslensku lambakjöti

5.000.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Fjárvís.is Samskipti við jaðartæki - framhald

4.170.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Afkvæmarannsóknir vegna sæðingastöðvanna 2023

725.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Afkvæmarannsóknir bænda á hrútum 2023

3.380.000 kr.

Landbúnaðarháskóli Íslands

Riðukynbótamat

4.100.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Jörð.is - Snjalltækjavæðing

1.000.000 kr.

Smalahundafélag Íslands SÍF

Erlendir leiðbeinendur við fjárhundatamningar

1.200.000 kr.

Karólína Elísabetardóttir

Vettvangsferð hóps alþjóðlegra riðusérfræðinga

300.000 kr.

 

Samtals

34.600.000

 

Nautgriparækt

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Jörð.is - Snjalltækjavæðing

1.041.333 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Bætt uppskeruskráning á korni

980.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

NorFor 2023 samstarf

2.568.545 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Endurmenntun í búfjárdómum holdagripa

949.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Rekstur kúabúa - greining rekstrargagna og eftirfylgni til bænda Framhald

7.380.000 kr.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Huppa.is - mælaborð

2.325.000 kr.

Landbúnaðarháskóli Íslands

Skipulögð yfirsáning grasfræs á tún - leið til að bæta endingu ræktunar

966.000 kr.

Landbúnaðarháskóli Íslands

Dreifðar byggkjarnatilraunir

3.000.000 kr.

Landbúnaðarháskóli Íslands

Beit mjólkurkúa í mjaltaþjónafjósi

2.513.000 kr.

 

Samtals

21.722.878 kr.

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum