Hoppa yfir valmynd
12. maí 2023 Utanríkisráðuneytið

Gjöf Íslands til Evrópuráðsins vegna leiðtogafundarins

Gjöf Íslands til Evrópuráðsins vegna leiðtogafundarins - myndUtanríkisráðuneytið

Í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins gefur Ísland ráðherranefnd ráðsins útskorinn fundarhamar eftir listakonuna Sigríði Kristjánsdóttur. Fyrirmynd hamarsins er frægur fundarhamar Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara.

Hefð er fyrir því að formennskuríki Evrópuráðsins gefi Evrópuráðinu gjöf við lok formennskutímabilsins. Gjöf Íslands til ráðherranefndar Evrópuráðsins í ár verður eftirgerð að fundarhamri Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara sem upprunalega var gefinn Sameinuðu þjóðunum árið 1952 þegar nýjar höfuðstöðvar stofnunarinnar í New York voru teknar í notkun. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra mun sem forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins afhenda Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands, fundarhamarinn á lokaathöfn leiðtogafundar Evrópuráðsins 17. maí en Lettar taka þá formlega við formennsku í ráðinu. Listakonan Sigríður Kristjánsdóttur, Sigga á Grund, skar hamarinn út, sem notaður verður til að stýra fundum ráðherranefndarinnar. 

Efniviður Sigríðar í verkið er gamall peruviður sem að hennar sögn kemur einmitt frá gömlu meisturunum. Í upprunalegt verk sitt, sem stundum er kallað Ásmundarnautur, valdi Ásmundur Sveinsson þemað „Bæn víkingsins fyrir friði“, sem sést þegar vel er að gáð að hamarshöfuðið er stílfærður víkingur með spenntar greipar fyrir brjósti sér. 

„Þemað var einkar viðeigandi á sínum tíma þar sem hamarinn er helgaður því höfuðhlutverki Sameinuðu þjóðanna að vernda heimsfrið. Fundarhamar hefur það hlutverk að koma röð og reglu á fundarhöld og allir þurfa að hlíta honum, bæði fulltrúar stórra og smárra ríkja. Það á ekki síður við nú á þegar stríð geisar í Evrópu. Þða er fallegt að þarna liggi víkingur á bæn um frið því við trúum því að allar manneskjur þrái helst frið og farsæld,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra..

Hamarinn hvílir á litlum stokki sem er holur að innan og þar má koma fyrir góðum skilaboðum til næstu formennsku. Á hamarinn er letrað á latínu og íslensku: Legibus gentes moderandae sunt -  Með lögum skal land byggja.

Lesa má nánar um söguna á bakvið fundarhamrana, gjafir Íslands til bæði Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafsbandalagsins, og nú Evrópuráðsins, á söguvef utanríkisráðuneytins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum