Hoppa yfir valmynd
13. maí 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

S&P Global Ratings staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs en breytir horfum í jákvæðar

Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur breytt horfum um lánshæfi ríkissjóðs úr stöðugum í jákvæðar og staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands.

Samkvæmt S&P mun sterkur yfirstandandi efnahagsbati í kjölfar heimsfaraldursins og áframhaldandi afkomubati hins opinbera á næstu árum styrkja stöðu opinberra fjármála á Íslandi umfram fyrri væntingar fyrirtækisins. S&P telur að sterk innlend eftirspurn og áframhaldandi bati í ferðaþjónustu muni leiða til 3,3% hagvaxtar á yfirstandandi ári og að meðaltali 2,4% hagvaxtar 2024-2026. Ísland hefur tekist á við þrýsting á ytri áskoranir þjóðarbúsins með skilvirkum hætti og sjálfstæði landsins í orkumálum hefur veitt vörn gegn áhrifum innrásar Rússa í Úkraínu. S&P hefur því endurskoðað horfur fyrir lánshæfiseinkunnirnar úr stöðugum í jákvæðar.

Jákvæðar horfur endurspegla það mat S&P að horfur í opinberum fjármálum eða geta landsins til að mæta ytri áföllum muni halda áfram að batna, mögulega umfram væntingar S&P, á næstu 24 mánuðum.

S&P gæti hækkað lánshæfiseinkunnina ef bati opinberra fjármála verður umfram væntingar, ýmist vegna minni halla og lægri hreinna skulda eða vegna minni ríkisábyrgða. Einkunnirnar gætu einnig verið hækkaðar ef S&P teldi að geta landsins til þess að standa af sér ytri áföll hefði batnað. Það gæti gerst vegna meiri útflutningsvaxtar og aukinni fjölbreytni útflutnings og þar með lægri hreinni erlendra skulda og minni sveiflna í viðskiptakjörum.

Horfunum gæti verið breytt í stöðugar á ný ef ytri staða þjóðarbúsins myndi versna markvert í samanburði við væntingar. Samhliða því yrði hagvöxtur líklega minni en búist er við. Þetta gæti gerst m.a. vegna minni efnahagsumsvifa í helstu viðskiptalöndum Íslands í Evrópu eða breytinga í alþjóðlegum ferðavenjum sem myndu hamla yfirstandandi bata í ferðaþjónustu.

Skýrsla S&P

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum