Hoppa yfir valmynd
15. maí 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sprotasjóður styrkir 25 verkefni

Styrkþegar Sprotasjóðs 2023 - mynd

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 56,8 m.kr. til 25 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2023–2024. Mennta- og barnamálaráðherra og formaður stjórnar sjóðsins afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu í dag.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla er hjá Rannís. Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni

  • farsæld barna og ungmenna með áherslu á geðrækt, geðtengsl, geðheilbrigði,
  • sköpun og hönnun,
  • stafræn borgaravitund, upplýsinga- og miðlalæsi.

Eftirfarandi umsækjendur og verkefni hlutu styrki að þessu sinni:

  • Leikskóli Seltjarnarness: Listaskáli á leikskóla
  • Flensborgarskóli: Félagsleg tengsl  og vellíðan í nýnemabekkjum 
  • Steinþór Snær Þrastarson: Hænsnakofinn
  • Sunnugarður ehf.: Menningararfleið í læsistengdri skynjun
  • Kópavogsbær: Við erum glöð í geði þegar við erum með !!
  • Kópavogsbær: Komdu út að leika og skapa!
  • Leikskólinn Goðheimar, Sveitarfélagið Árborg: Geymast mér í minni myndir bernskunar  
  • Leikskólinn Miðborg: Starfshættir í aðlögun sem eflir tengslamyndun
  • Helgafellsskóli: Skapið og þér munuð finna (nýjan tilgang)
  • Grunnskólinn á Þórshöfn: Það vex, sem að er hlúð.
  • Hafnarfjarðarkaupstaður, allir grunnskólar og mennta- og lýðheilsusvið: Kyn- og kynjafræðsla
  • Tálknafjarðarskóli: Geðrækt í Tálknafjarðarskóla
  • Laugalækjarskóli: Stafrænar spírur
  • Menntaskólinn við Sund: Þróun nemendaþjónustu með farsæld að leiðarljósi
  • Fossvogsskóli: Hundur í skóla - aukin vellíðan
  • Akureyrarbær, fræðslu- og lýðheilsusvið: Bætt verklag í baráttu við skólaforðun
  • Stóru-Vogaskóli: Íslenska í orði og á borði
  • Mosfellsbær: Aukin farsæld hinsegin barna Í samfélaginu
  • Menntaskólinn á Akureyri: Geðrækt í MA - Bjargráðin 5
  • Oddeyrarskóli: Bætt líðan - aukin fræðsla
  • Reykjavíkurborg: Mixið - fjölbreytt og skapandi vinna í smiðjum
  • Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnvetninga: Sameiginleg forvarnaráætlun Norðurlands Vestra
  • Leikskólinn Holt: Leikgleði í gegnum  sögur og söng
  • Kópavogsbær: Að efla stafræna ábyrgð nemenda.
  • Sveitarfélagið Árborg: Hvernig má styðja við farsæld barna í leikskóla?

Sprotasjóði bárust 76 umsóknir í ár sem er 30% aukning frá því í fyrra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum