Hoppa yfir valmynd
23. maí 2023 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2023 til 30. júní 2024

Föstudaginn 12. maí 2023 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum á grundvelli reglugerðar nr. 337/2023, fyrir tímabilið 1. júlí 2023 til 30. júní 2024. Útboðsverð tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er.

 

Samtals bárust nítján gild tilboð í tollkvótann.

 

Tólf tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 527.001 kg á meðalverðinu 290 kr./kg.  Hæsta boð var 1.290 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 95.000 kg á jafnvægisverðinu 680 kr./kg.

 

Sex tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 171.500 kg á meðalverðinu 42 kr./kg.  Hæsta boð var 250 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 64.000 kg á jafnvægisverðinu 3 kr./kg.

 

Fimm tilboð bárust um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 760.000 kg á meðalverðinu 9 kr./kg.  Hæsta boð var 301 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 345.000 kg á jafnvægisverðinu 1 kr./kg.

 

Tíu tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 299.000 kg á meðalverðinu 147 kr./kg.  Hæsta boð var 311 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á jafnvægisverðinu 301 kr./kg.

 

Fjögur tilboð bárust um innflutning á smjöri og fitu, samtals 115.800 kg á meðalverðinu 1 kr./kg.  Hæsta boð var 20 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 53.000 kg á jafnvægisverðinu 1 kr./kg.

 

Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 553.500 kg á meðalverðinu 215 kr./kg. Hæsta boð var 622 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á jafnvægisverðinu 461 kr./kg.

 

Fimm tilboð bárust um innflutning á eggjum og afurðum þeirra, samtals 254.000 kg á meðalverðinu 13 kr./kg.  Hæsta boð var 103 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 76.000 kg á jafnvægisverðinu 21 kr./kg.

 

Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 438.000 kg á meðalverðinu 254 kr./kg. Hæsta boð var 800 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á jafnvægisverðinu 630 kr./kg.

 

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

45.500

Háihólmi ehf

31.000

Kjötmarkaðurinn ehf

18.500

OJK – Ísam ehf

 

 

 

Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

30.000

Kjarnafæði Norðlenska hf

34.000

LL42 ehf

 

 

Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

40.000

Kjarnafæði Norðlenska hf

20.000

Krónan ehf

276.972

LL42 ehf

8.028

Samkaup hf

 

Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

11.000

Krónan ehf

48.000

Mata hf

 

Smjör fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

2.747

Innnes ehf

1.716

Krónan ehf

48.537

LL42 ehf

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

12.000

Aðföng

15.000

Garri ehf

31.200

Innnes ehf

10.000

KFC ehf

40.800

Krónan hf

500

Mata hf

3.000

Nathan & Olsen hf

1.500

Nautica ehf

5.000

Samkaup hf

 

Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

16.000

Krónan ehf

60.000

Lífland ehf

 

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2023 - júní 2024

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

16.000

Aðföng

20.000

Krónan hf

50.000

OJK-Ísam ehf

 

Reykjavík, 23. maí 2023

 

Matvælaráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum