Hoppa yfir valmynd
24. maí 2023 Forsætisráðuneytið

Ingi Björn Guðnason ráðinn staðarhaldari á Hrafnseyri

Ingi Björn Guðnason bókmenntafræðingur hefur verið ráðinn staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð og tók hann formlega við starfinu í síðasta mánuði. Starf staðarhaldara á Hrafnseyri við Arnarfjörð var auglýst laust til umsóknar í lok síðasta árs og var Ingi Björn ráðinn úr hópi 17 umsækjenda.

Ingi Björn er með meistarapróf í almennum bókmenntafræðum frá Háskóla Íslands og hefur starfað um 15 ára skeið við Háskólasetur Vestfjarða. Áður hefur hann starfað við dagskrárgerð í útvarpi og sem upplýsingafulltrúi á Gljúfrasteini. Ingi Björn hefur mikla reynslu á sviði markaðs- og vefmála, skipulaginingu menningarviðburða og miðlun menningarefnis.

Hrafnseyri er fæðingarstaður Jón Sigurðssonar. Starfsemin er helguð sögu og umhverfi Hrafnseyrar, arfleifð Jóns Sigurðssonar og lýðræði í anda hans. Áhersla er á samstarf við menningar- og menntastofnanir á Vestfjörðum. Þjónusta staðarins taki mið af þessu leiðarljósi, fjölbreyttum þörfum almennings og þjónustu við fræðimenn, listamenn og aðra sem starfa í skapandi greinum. Mikilvægt er að starfsemin hafi skírskotun til samtímans hér á landi og alþjóðlega. Staðarhaldari hefur búsetu á Vestfjörðum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum