Hoppa yfir valmynd
25. maí 2023 Innviðaráðuneytið

Góðar rómur gerður að ráðstefnu um viðbúnað og viðbrögð við rafmagnseldum í skipum

Alþjóðleg ráðstefna um elda í rafhlöðum um borð í skipum var haldin í vikunni í Reykjavík, sú fyrsta sinnar tegundar. Tæplega 200 manns sóttu ráðstefnuna á staðnum og á netinu. Innlendir og erlendir sérfræðingar, einkum norrænir, miðluðu af þekkingu sinni og reynslu um hættu, afleiðingar og viðbrögð við rafmagnseldum. 

Samgöngustofa hafði veg og vanda af undirbúningi ráðstefnunnar sem haldin var í samvinnu við Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA), innviðaráðuneytið, Eimskip, DNV, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið Vestmanneyja, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslu Íslands, Smyril Line og fjölda annarra aðila á Íslandi.

Með hraðvaxandi orkuskiptum í farartækjum hafa orðið til áskoranir, s.s. eldum í rafhlöðum sem eru af öðrum toga en eldsvoðar af olíu og öðrum orkugjöfum. Á ráðstefnunni kom m.a. fram að verið sé að þróa árangursríkar leiðir til að ráða niðurlögum elda af þessu tagi.

Norðmenn hafa dregið lærdóm af eldum í rafknúnum skipum þar í landi (Ytterøyningen og Brim) þ.m.t. hættuna af notkun kolflúorslökkviefna á slíka elda. Fulltrúar frá Smyril line kynntu m.a. ráðstafanir sínar og viðbúnað í ferjum á þeirra vegum. Þá var fjallað um aðkomu tryggingafélaga og krafna þeirra til búnaðar rafknúinna skipa. Einnig var fjallað um notkun ferskvatns við slökkvistörf og loks talaði fulltrúi EMSA um framtíðaráskoranir sem orkuskiptum fylgja. 

Fyrirlesarar voru sammála um að samvinna um þekkingarmiðlun væri besta leiðin til að ná árangri. Fulltrúar Siglingaöryggisstofnunar Evrópu (EMSA), auk annarra, lýstu ánægju sinni með það frumkvæði sem Íslendingar hafi tekið með skipulagningu ráðstefnunnar. Siglingayfirvöld í Evrópu og víðar yrðu hvött til þess að halda áfram að huga vel að öryggi skipa í nýjum heimi orkuskipta.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum