Hoppa yfir valmynd
25. maí 2023 Innviðaráðuneytið

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Byggðastofnunar, og Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, opnuðu Suðurlandsvega milli Hveragerðis og Selfoss. - mynd

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss var opnaður formlega við hátíðlega athöfn í dag. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, klipptu á borða í tilefni af þessum merku tímamótum. Umferðaröryggi eykst til muna með þessari framkvæmd enda eru akstursstefnur nú aðskildar og vegamótum hefur fækkað úr rúmlega tuttugu í tvenn.

Verkinu í heild átti að ljúka í september 2023 samkvæmt útboði. Verkið er því nokkuð á undan áætlun. Þá var stór hluti verksins, nýtt hringtorg við Biskupstungnabraut og um fjögurra kílómetra kafli vegarins, tekinn í notkun í september á síðasta ári.

„Ég hef í ráðherratíð minni lagt sérstaka áherslu á að fækka einbreiðum brúm og vegamótum, stytta vegalengdir milli staða og síðast en ekki síst að aðskilja akstursstefnur á umferðarþyngstu vegunum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þessi vegarkafli milli Hveragerðis og Selfoss er einn af þeim fjölförnustu á landinu og því var framkvæmdin mjög tímabær. Það hefur sýnt sig og sannað að aðskilnaður akstursstefna eykur öryggi og bjargar mannslífum,“ sagði Sigurður Ingi í ávarpi í tilefni af opnuninni.

Nánar um verkið

Framkvæmdin nær um sveitarfélagið Ölfus og sveitarfélagið Árborg og skiptist í Hringveg (um 7,2 km), Ölfusveg (um 6,6 km), Þórustaðaveg (um 0,4 km) og Biskupstungnabraut (um 0,7 km). Öll umferð fyrir sveitirnar í kring færist yfir á nýjan Ölfusveg sem liggur samhliða Hringvegi.

Tvenn stór vegamót eru í framkvæmdinni, hringtorg við Biskupstungnabraut og nýjan Hringveg og svo hliðfærð T-vegamót á Hringvegi við Hvammsveg eystri og Kirkjuferjuveg. Fimm steyptar brýr og undirgöng ásamt tvennum reiðgöngum úr stáli teljast einnig til framkvæmdanna. Að auki voru gerðar miklar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja.

Þá var fyrsta skrefið stigið að snjallvæddum vegi á Íslandi en í þessu verki var í fyrsta sinn lagt fyrir ljósleiðara meðfram vegi. Það getur haft mikla þýðingu fyrir umferðaröryggi og fjarskiptaöryggi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum