Hoppa yfir valmynd
25. maí 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Uppbygging fyrir börn og fjölskyldur í Skálatúni í Mosfellsbæ

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Björn Sævar Einarsson, stjórnarformaður Skálatúns og formaður IOGT á Íslandi og Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra - mynd

Í Skálatúni í Mosfellsbæ er stefnt að uppbyggingu á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna. Markmiðið er að þar komi saman á einn stað helstu stofnanir og samtök sem koma að þjónustu við börn og ungmenni auk úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur í samvinnu við Mosfellsbæ unnið að þróun hugmyndar um uppbyggingu þjónustu við börn í landi Skálatúns í Mosfellsbæ. Skálatún er rekið af IOGT á Íslandi, samtök með það að markmiði að móta enn betra samfélag með manngildi að grunni. IOGT á Íslandi hefur ákveðið að ánafna fasteignir og lóð Skálatúns til nýtingar í málefnum barna og fjölskyldna.

Við undirritun samkomulags í Skálatúni í dag

Sú uppbygging sem stefnt er að felur í sér að aðilar sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu, stofnanir ríkisins, félagasamtök og aðrir aðilar geti verið staðsettir á sama svæðinu. Markmiðið með því er að auka samstarf og samtal milli aðila, samnýta yfirbyggingu, lækka rekstrarkostnað og bæta aðgengi fyrir börn og fjölskyldur að þjónustu mismunandi aðila á sama stað. Þá stendur einnig til að leita leiða til þess að veita aukna og samþætta þjónustu til þeirra barna sem glíma við fjölþættan vanda og þurfa á miklum stuðningi að halda.

„Í Skálatúni felast mikil sóknarfæri til að bæta og samþætta þjónustu við börn og ungmenni. Nýta má fjölbreyttan húsakost og staðsetningu Skálatúns vel til að stytta fjarlægðina milli hinna ýmsu þjónustuaðila og auka þannig samtal og samstarf þeirra á milli. Ég vil sérstaklega þakka IOGT á Íslandi fyrir afhendingu þessara eigna í þetta mikilvæga verkefni og Mosfellsbæ fyrir gott samstarf um verkefnið. Ég hlakka til áframhaldandi uppbyggingar þjónustu á svæðinu á grunni þeirra gilda sem starfsemin að Skálatúni hefur ávallt staðið fyrir,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Samráðshópur verður settur á laggirnar til að fylgja verkefninu eftir.

Samhliða mun Mosfellsbær taka yfir þjónustu við íbúa Skálatúns en í dag búa 33 einstaklingar í Skálatúni í mismunandi búsetuformi.

„Við í bæjarstjórn Mosfellsbæjar fögnum því að niðurstaða sé komin í viðræður um framtíðarskipan á rekstri Skálatúns en sú uppbygging sem er ráðgerð á svæðinu mun opna spennandi möguleika á þróun og nýsköpun í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi. Í þeim samningum sem hér liggja fyrir er sérstaklega gætt að hagsmunum íbúa Skálatúns og tryggt að þeir njóti þeirrar þjónustu og aðbúnaðar sem þeir eiga rétt á. Öllu starfsfólki Skálatúns verður boðið áframhaldandi starf og er boðið velkomið í starfsmannahóp Mosfellsbæjar,“ segir Halla Karen Kristjánsdóttir, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar.

Skálatún er sjálfseignarstofnun sem hefur veitt þjónustu fyrir fatlað fólk frá árinu 1954. Í Skálatúni eru 12 fasteignir sem telja alls 5.000 m2 á sex hektara svæði norður af Vesturlandsvegi þegar komið er inn í Mosfellsbæ úr Reykjavík. Svæðið er vel staðsett með tilliti til aðgengis, það er við Borgarlínu og nálægt helstu umferðaræðum.

„Þann 30. janúar 1954 stofnaði Stórstúka Íslands, nú Bindindissamtökin IOGT á Íslandi, sjálfseignarstofnunina Skálatún. Þann dag fluttu fyrstu börnin á Barnaheimili Templara við Skálatún eins og það hét þá. Eitt þeirra barna býr enn í Skálatúni. Bindindishreyfingin á Íslandi var þarna brautryðjandi á Íslandi í að bæta þjónustu við fatlaða. Skálatún hefur starfað í þágu fatlaðra í hartnær 70 ár. Nú er komið að leiðarlokum og er við hæfi að loka nú hringnum með hag barna að leiðarljósi. Stjórnir Skálatúns og IOGT fagna því að geta stutt þessa stórhuga uppbyggingu þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra á Íslandi með því að ánafna eignir Skálatúns í þetta verkefni,“ segir Björn Sævar Einarsson, stjórnarformaður Skálatúns og formaður IOGT á Íslandi. „Stjórn Skálatúns fagnar samningi við Mosfellsbæ og óskar bænum velfarnaðar í að þjónusta íbúa Skálatúns. Stjórn Skálatúns þakkar öllu starfsfólki í gegnum tíðina fyrir vel unnin störf og þakkar öllum félögum í IOGT á Íslandi fyrir þeirra óeigingjörnu sjálfboðaliðastörf í Skálatúni síðastliðin 70 ár. Að lokum óskar stjórn Skálatúns öllum íbúum Skálatúns velfarnaðar og þakkar þeim auðmjúklega að hafa fengið að þjóna þeim eftir mætti.“


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum