Hoppa yfir valmynd
26. maí 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins laust til umsóknar

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veitir íbúum höfuðborgarsvæðisins alhliða heilsugæsluþjónustu sem grundvallast á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi. Auglýsing um starfið hefur einnig verið birt á www.starfatorg.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstjóri hefur forgöngu um þróun og eflingu heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og í samvinnu við aðila sem veita almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Forstjóri ber ábyrgð á að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015  og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. 

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Reynsla af rekstri og stjórnun, þ.m.t. mannaforráð, sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
  • Þekking og reynsla á sviði heilbrigðisþjónustu.
  • Reynsla af stefnumótun og innleiðingu nýjunga er skilyrði og skýr framtíðarsýn.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
  • Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera, hafi mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti,  góða kunnátta í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Hæfni umsækjenda verður metin af nefnd, skv. 2. mgr. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum.
Um laun forstjóra fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. 
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. september 2023.
Umsóknir með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2023

Nánari upplýsingar veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri.
Netfang: [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum