Hoppa yfir valmynd
8. júní 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

332 tillögur að aðgerðum sem stuðlað geta að samdrætti í losun afhentar ráðherra

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt fulltrúum atvinnugreinanna 11. - myndHåkon Broder Lund

Ellefu atvinnugreinar hafa nú afhent Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra 332 tillögur að aðgerðum sem stuðla eiga að auknum samdrætti í losun atvinnugreina. Afhendingin fór fram á Grænþingi í Hörpu í gær, í tengslum við útgáfu Loftslagsvegvísa atvinnulífsins (LVA). LVA er samstarfsverkefni atvinnulífs og stjórnvalda og var vinnan unnin á forsendum fyrirtækja í íslensku atvinnulífi með stuðningi frá vinnuteymi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Vinna er einnig í gangi á vegum Bændasamtakanna, Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) og Landsamtaka lífeyrissjóða að gerð vegvísa í loftslagsmálum sem kynntir verða á næstunni.

Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Til að metnaðarfull markmið stjórnvalda í loftslagsmálum náist þurfa allir að leggjast á eitt — stjórnvöld, atvinnulíf, sveitarfélög og almenningur í landinu. Það er ánægjulegt að sjá að atvinnulífið hefur stigið þetta skref til þátttöku í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og upplifa þann metnað og áhuga sem þessar 11 atvinnugreinar sýna  með vegvísum sínum. Vegvísarnir verða innlegg í uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem stjórnvöld ætla að kynna fyrir lok árs og hlakka ég til  að halda verkefninu áfram.”

Ísland hefur sett sér metnaðarfull markmið um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030 og hefur lögfest markmið um kolefnishlutleysi eigi síðar en 2040. Aðkoma íslensks atvinnulífs skiptir sköpum í þeim umskiptum sem nauðsynleg eru til að sett markmið náist. Enn fremur er aðkoma stjórnvalda nauðsynleg á þessari vegferð hvað varðar regluverk, innviði, hvata til grænna fjárfestinga og stuðning við nýsköpun, tækniþróun og orkuskipti.

Í því skyni var ákveðið að koma Loftslagsvegvísum atvinnulífsins á legg, en markmið verkefnisins er að  auka samstarf og samtal á milli atvinnulífs og stjórnvalda um tækifæri til samdráttar í losun í þeim tilgangi að hraða aðgerðum í þágu loftslagsmarkmiða Íslands og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Á Grænþingi í Hörpu í gær kynntu fulltrúar atvinnugreinanna vegvísa sína, þar sem rauði þráðurinn var:

  • Uppbygging orkuinnviða og aðgangur að hreinni orku
  • Skilvirkt regluverk og skýr markmið stjórnvalda
  • Fjárfesting í nýjum búnaði og tækni
  • Hvatar vegna loftslagstengdra fjárfestinga og framleiðslu
  • Nýsköpun og rannsóknir
  • Bætt hringrás

Loftslagsvegvísar atvinnulífsins innihalda atvinnugreinaskipta vegvísa, sem hafa margir hverjir  mælanleg markmið. Þeir geyma einnig sértækar aðgerðir og úrbótatillögur sem snúa bæði að atvinnulífinu og stjórnvöldum um umbætur í loftslagsmálum. Vegvísarnir eru lifandi skjöl sem verða uppfærð reglulega og mun þeim fjölga með uppfærslu aðgerða og fjölgun atvinnugreina.

Hægt er að nálgast vegvísana inn á www.loftslagsvegvisar.is.

  • 332 tillögur að aðgerðum sem stuðlað geta að samdrætti í losun afhentar ráðherra - mynd úr myndasafni númer 1
  • 332 tillögur að aðgerðum sem stuðlað geta að samdrætti í losun afhentar ráðherra - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum