Hoppa yfir valmynd
19. júní 2023 Dómsmálaráðuneytið

Tveir umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt

Þann 26. maí 2023 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar eitt embætti dómara við Landsrétt. Umsóknarfrestur rann út þann 12. júní síðastliðinn og eru umsækjendur tveir:

  • Ásgerður Ragnarsdóttir settur landsréttardómari,
  • Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari.

Umsóknir hafa verið afhentar dómnefnd, sem fjallar um hæfni umsækjenda um embætti dómara, til meðferðar. Skipað verður í embættið frá og með 21. ágúst næstkomandi. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum