Hoppa yfir valmynd
22. júní 2023 Dómsmálaráðuneytið

Hreinn Loftsson ráðinn aðstoðarmaður dómsmálaráðherra

Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra. Hreinn lauk laganámi frá Háskóla Íslands árið 1983, var við framhaldsnám í Oxford 1984-85 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum árið 1988 og Hæstarétti árið 1993. Hann á að baki fjölbreyttan feril í lögmennsku, atvinnulífi, stjórnsýslu og sem aðstoðarmaður ráðherra í viðskipta-, utanríkis- og samgönguráðuneytunum á árunum 1983-1988, forsætisráðuneytinu árin 1991-1992, í dómsmálaráðuneytinu árin 2019-2021 og í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu árið 2022. Hann var sjálfstætt starfandi lögmaður á árunum 1988 til ársins 1991 og frá árinu 1992 til ársins 2019. Hreinn hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og átt sæti í ýmsum stjórnum og nefndum, auk starfs á vettvangi stjórnmála.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum