Hoppa yfir valmynd
23. júní 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna frétta um sátt Íslandsbanka og fjármálaeftirlits Seðlabankans

Fram hefur komið í fréttum að Íslandsbanki hafi fallist á á boð fjármálaeftirlits Seðlabankans um að greiða 1,16 ma.kr. í sátt vegna brota á reglum við framkvæmd útboðs Bankasýslu ríkisins á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra.
 
Fjármálaeftirlitið hóf í apríl 2022 rannsókn á mögulegum brestum í framkvæmd sölunnar af hálfu Íslandsbanka. Af fjárhæð sektarinnar má ljóst telja að um alvarlegar brotalamir er að ræða.
 
Bankasýsla ríkisins hefur birt yfirlýsingu vegna málsins þar sem fram kemur að stofnunin muni fylgja málinu eftir í samræmi við lögbundið hlutverk hennar.
 
Ekki er tímabært að taka efnislega afstöðu til málsins fyrr en nánari upplýsingar um brotin liggja fyrir. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að í þeim upplýsingum komi fram með hvaða hætti farið var á svig við reglur og hvernig ábyrgð er háttað enda er mikilvægt til að undirbyggja traust almennings að tekið sé á því ef reglum fjármálamarkaðar er ekki fylgt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum