Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt

Hinn 26. maí síðastliðinn auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar eitt embætti dómara við Landsrétt, til skipunar frá og með 21. ágúst 2023. Umsóknarfrestur var til 12. júní 2023 og bárust tvær umsóknir um embættið.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra. Það er niðurstaða dómnefndar að Ásgerður Ragnarsdóttir settur landsréttardómari og Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari, séu mjög vel hæf til að gegna embætti dómara við Landsrétt og að ekki verði gert upp á milli hæfni þeirra tveggja.

Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar vegna Landsréttar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum