Hoppa yfir valmynd
18. september 2023 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra á leiðtogafundi um heimsmarkmiðin

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. - myndMynd: Sameinuðu þjóðirnar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í dag viðstödd opnun leiðtogafundar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í New York. Fundurinn er haldinn í tengslum við 78. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem verður formlega sett á morgun.

Markmið leiðtogafundarins er að fá fram skuldbindingar ríkja til að hraða aðgerðum til að ná heimsmarkmiðunum fyrir 2030.

Forsætisráðherra og íslensk stjórnvöld stóðu einnig fyrir viðburði í samstarfi við UN Women um stöðu kvenna í Afganistan. Þar flutti forsætisráðherra opnunarávarp og fjallaði um skelfilega stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan í kjölfar valdatöku talibana og skyldu alþjóðasamfélagsins til að beita sér í málinu. Rithöfundurinn og blaðakonan Christina Lamb stýrði pallborðsumræðum sem afganskar baráttukonur tóku þátt í ásamt Rinu Amiri, sérstökum erindreka Bandaríkjaforseta í málefnum Afganistan, utanríkisráðherra Sameinuðu furstadæmanna, ráðherra þróunarmála í Bretlandi, utanríkisráðherra Finnlands og fleirum.

Í gær flutti forsætisráðherra opnunarávarp á miðannarfundi átaksins Kynslóð jafnréttis (Generation Equality) en Ísland var gestgjafi fundarins ásamt Tansaníu og UN Women. Á fundinum var rætt um hið alvarlega bakslag sem orðið hefur í jafnréttismálum víða um heim og nauðsyn þess að grípa til markvissra aðgerða til að snúa þeirri þróun við.

Forsætisráðherra stýrði einnig pallborðsumræðum þar sem rætt var um ábyrgð ríkja, skuldbindingar og árangur af verkefnum átaksins til að auka jafnrétti.

Þá átti forsætisráðherra í gær tvíhliða fund með António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Þar ræddu þau um velsældarhagkerfin og -mælikvarða og hvernig velsældarnálgunin getur stutt við að ná markmiðum í loftslagsmálum vinnu við heimsmarkmiðin. Þá ræddu þau jafnréttis- og mannréttindamál og nauðsyn alþjóðlegs samstarfs til að takast á við áskoranir samtímans.

Forsætisráðherra átti einnig tvíhliðafundi með Lazarus McCarthy Chakwera, forseta Malaví, Taneti Maamau, forseta Kiribati, Xavier Espot Zamora, forsætisráðherra Andorra, Paulinu Brandberg, jafnréttisráðherra Svíþjóðar og Gerd Muller, framkvæmdastjóra UNIDO.

Síðar í dag mun forsætisráðherra flytja opnunarávarp á hliðarviðburði í tilefni Alþjóðlega jafnlaunadagsins.

  • Forsætisráðherra á leiðtogafundi um heimsmarkmiðin - mynd úr myndasafni númer 1
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lazarus McCarthy Chakwera, forseti Malaví. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Taneti Maamau, forseti Kiribati. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Xavier Espot Zamora, forsætisráðherra Andorra. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Paulina Brandberg, jafnréttisráðherra Svíþjóðar. - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Gerd Muller, framkvæmdastjóri ILDO. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum