Hoppa yfir valmynd
19. september 2023 Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Fjarheilbrigðisþjónusta er byggðamál

Byggðamál snerta flesta, ef ekki alla, málaflokka ríkisins og í stefnumótandi byggðaáætlun er lögð áhersla á samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Af 44 aðgerðum byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2026 eru 32 aðgerðir á ábyrgð annarra ráðuneyta en innviðaráðuneytis og tengjast málefnasviðum þeirra. Ein af þeim er aðgerð A.5 Fjarheilbrigðisþjónusta. Markmið með þeirri aðgerð er að aðgengi að heilbrigðisþjónustu verði aukið og bætt með nýsköpun og nýtingu tækni og fjarskipta við framkvæmd þjónustu. 

Byggðaáætlun leggur 20 m.kr. á ári til aðgerðarinnar sem heilbrigðisráðuneytið ber ábyrgð á. Nýverðið úthlutaði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra 55 milljónum kr. til 18 verkefna á sviði gæða- og nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu. Verkefnin hafa öll að markmiði að bæta þjónustu við notendur og stuðla að greiðara aðgengi með stafrænum lausnum. Styrkir til hvers verkefnis eru á bilinu 2-4 m.kr.

Í ár var annars vegar lögð áhersla á verkefni sem stuðla að jafnari aðgengi almennings um land allt að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, líkt og fjallað er um í aðgerðinni á byggðaáætlun. Hins vegar var áhersla lögð á verkefni sem styðja við framkvæmd tillögum viðbragðsteymis heilbrigðisráðuneytisins um bráðaþjónustu á landsvísu. Þess má geta að byggðaáætlun styður einnig við bráðaþjónustu í gegnum A.3 Bráðaviðbragð neyðarþjónustu sem er á sameiginlegri ábyrgð heilbrigðisráðuneytis og dómamálaráðuneytis.

  • Byggðaáætlun stjórnvalda - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum