Hoppa yfir valmynd
20. september 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Skrásetningargjöld háskóla ekki hækkuð

Skrásetningargjöld háskóla ekki hækkuð  - myndHáskóli Íslands

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ákveðið að opinberu háskólarnir fái ekki heimild til að hækka skrásetningargjöld líkt og skólarnir sendu ráðuneytinu erindi um, en óskað var eftir heimild til að hækka gjöldin úr 75.000 kr. í 95.000 kr.

,,Háskólanemar eru í hópi þeirra sem eru annað hvort nýkomin út á húsnæðismarkaðinn eða eru í þeim sporum að reyna að koma þaki yfir höfuðið,” segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála. ,,Sá munur er einnig á háskólanemum á Íslandi og í nágrannaríkjunum að stærri hluti þeirra á ung börn og er að stíga sín fyrstu skref í að hlúa að fjölskyldu. Háir vextir, erfiðleikar með leikskólapláss og ýmsar aðrar aðstæður efnahagslífsins bitna nú á háskólanemum í þeim mæli að mikilvægt er að opinberir aðilar auki ekki á útgjöld þeirra.”

Fjárframlög til háskóla hafa hækkað og árið 2024 verður aukningin strax um 3,5 ma. kr. frá fyrri áætlunum. Til ársins 2028 er gert ráð fyrir 6 ma. kr. aukningu fjárframlaga til háskólastigsins. ,,Það er mikilvægt að opinberir háskólar, líkt og aðrir opinberir aðilar, sýni aðhald í rekstri og finni leiðir til að sækja fram og auka gæði náms án þess að hækka skrásetningargjöld,” segir ráðherra um ákvörðunina.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum