Hoppa yfir valmynd
27. september 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Leiðin vörðuð að loftslagsþolnu samfélagi: Upphaf nýrrar þverfaglegrar áætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ásamt fulltrúum stýrihóps um gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. F.v.  Anna Hulda Ólafsdóttir, Finnur Ricart Andrason, Hugrún Elvarsdóttir og Hrönn Hrafnsdóttir. Á myndina vantar formann hópsins Jens Garðar Helgason. - mynd

Loftslagsatlas, vöktunaráætlun, loftslagsáhættuvísar og tilraunaverkefni um gagnagátt fyrir náttúruvá eru forgangsaðgerðir sem stýrihópur um loftslagsþolið Ísland vill sjá verða að veruleika. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði haustið 2022 stýrihóp til að vinna tillögur fyrir gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Hópurinn skilaði ráðherra tillögum sínum í gær.

Gert er ráð fyrir að með landsáætlun fái stjórnvöld yfirsýn yfir aðlögunaraðgerðir vegna loftslagsbreytinga þvert á ólíka málaflokka og framkvæmdaaðila, hvort sem það eru önnur ráðuneyti, ríkisstofnanir, sveitarfélög eða aðrir haghafar. Landsáætlun er ætlað að gagnast við að móta aðgerðir, fylgja þeim eftir, styðja og fjármagna. Aukinheldur nýtist hún til að taka reglulega og greinargóða stöðu á aðlögun íslensks samfélags og lífríkis að loftslagsbreytingum.

Mynd 1. Stjórnunarhættir fyrir loftslagsþolið Ísland. 

Meðal þess sem hópurinn leggur fram í skýrslunni, auk forgangsaðgerðanna fjögurra, er:

  • heildarsýn á málaflokkinn (sjá Mynd 1)
  • að skilgreina landsáætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum í reglugerð þannig að landsáætlun verði sett til 15 ára í senn, en aðgerðaáætlanir til fimm ára (sjá Mynd 2)
  • að skipa stýrinefnd til þriggja ára og að kannað verði hvort ein og sama nefndin geti borið ábyrgð á báðum loftslagsáætlunum loftslagslaga, þ.e.aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, sem snýr að samdrætti losunar og aukinni kolefnisbindingu, oglandsáætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum.

Forgangsaðgerðirnar eiga sammerkt að með innleiðingu þeirra telur stýrihópurinn að hafa megi víðtæk áhrif til aðlögunar á breiðum grunni.

Stýrihópinn skipuðu:

Jens Garðar Helgason, formaður

Anna Hulda Ólafsdóttir, Veðurstofu Íslands

Hrönn Hrafnsdóttir, Reykjavíkurborg (tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga)

Hugrún Elvarsdóttir, Samtök atvinnulífsins

Finnur Ricart Andrason,  Ungir umhverfissinnar

Mynd 2. Tímalína landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum

„Við verðum alltaf að sýna fyrirhyggju og hugsa fram í tímann. Það skiptir miklu máli að við byggjum þær ákvarðanir sem varða samfélagið okkar til lengri tíma á bestu mögulegu upplýsingum. Þessi skýrsla er mikilvæg varða á þeirri leið og gagnleg fyrir fólkið í landinu, fyrirtækin og sveitarfélögin sem skipuleggja byggð. Það skiptir líka máli að við vinnum saman og að sem flestir komi að þessum málum. Það er ánægjulegt að sjá að um 300 manns koma að gerð þessarar skýrslu í samráðsferli og skilar það sér í um 100 hugmyndum að aðgerðum. Bestu mögulegar upplýsingar, samvinna og samstarf eru lykilþættir í velgengni okkar þegar kemur að aðlögun. Þessi skýrsla er góð varða á þessari leið,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

93 aðgerðir í 14 málaflokkum

Haldin var röð af vinnustofum í tengslum við vinnu stýrihópsins með helstu hópum haghafa og fagaðila byggt á flokkum markmiða í aðlögunarstefnu. Alls voru haldnar 13 vinnustofur með um 300  fulltrúum úr helstu geirum atvinnulífsins,  ráðuneytum, stofnunum, sveitarfélögum og félagasamtökum. Samráðsferlið skilaði 93 aðgerðum í 14 málaflokkum og lá áhersla á nauðsyn og mikilvægi þverfaglegs samstarfs sem rauður þráður í gegnum allar vinnustofurnar.

Afrakstur vinnustofanna var samantekt um helstu málaflokka aðlögunar er að finna á https://adlogun.alta.is/ og hugmyndabanka aðgerða  á slóðinni https://geo.alta.is/adlogun/

Forgangsaðgerðirnar fjórar sem ráðuneytið er hvatt til að setja strax af stað eru:

1.       Loftslagsatlas Íslands

2.      Vöktunaráætlun – upphaf átaks í rannsóknum

3.      Tilraunaverkefni um gagnagátt fyrir náttúruvá með áherslu á vatns- og sjávarflóð

4.      Loftslagsáhættuvísar fyrir Ísland

En allar eiga þær sameiginlegt að styðja við frekari mótun aðgerða undir landsáætlun.

Fram kemur í skýrslu stýrihópsins að þróa þurfi fjölbreytt úrval aðgerða undir landsáætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum svo  auka  megi seiglu og samkeppnishæfni Íslands frammi fyrir áhrifum loftslagsbreytinga og þurfa þær að ná allt frá heimilum að sveitarfélögum og fyrirtækjum. Bindur stýrihópurinn  vonir við hefja megi innleiðingu fyrstu aðgerðaáætlunar landsáætlunar strax árið 2025, að loknu u.þ.b. árslöngu áætlanagerðarferli.

Loftslagsþolið Ísland - Tillögur fyrir gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum
  • Leiðin vörðuð að loftslagsþolnu samfélagi: Upphaf nýrrar þverfaglegrar áætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum - mynd úr myndasafni númer 1
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra - mynd
  • Anna Hulda Ólafsdóttir, fulltrúi Veðurstofu Íslands, kynnir skýrslu stýrihópsins. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum