Hoppa yfir valmynd
27. september 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samkomulag gert við Rauða krossinn um neyðaraðstoð og reglur skýrðar um aðstoð við fólk sem fengið hefur endanlega synjun um vernd

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur gert samkomulag við Rauða krossinn á Íslandi um tímabundið verkefni sem felur í sér neyðaraðstoð við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt á aðstoð á grundvelli laga um útlendinga.

Þá hefur ráðuneytið gert breytingar á reglum um endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna áðurnefndra einstaklinga. Með breytingunum er skýrt hvað kemur til endurgreiðslu úr ríkissjóði vegna aðstoðar sveitarfélaga við fólkið.

Ráðherra hefur sent tilmæli til félagsþjónustu sveitarfélaganna vegna breytinganna. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sömuleiðis verið upplýst.

Rauði krossinn veitir neyðaraðstoð

Þar sem óvíst er hvort dvalarsveitarfélag í hverju tilviki fyrir sig hafi yfir að ráða úrræði til að hýsa umrædda einstaklinga, sem ekki eiga í önnur hús að venda, hefur félags- og vinnumarkaðsráðuneytið sem fyrr segir komist að samkomulagi við Rauða krossinn um tímabundið verkefni sem felur í sér að umræddir einstaklingar geti fengið gistingu og fæði í samræmi við það sem almennt tíðkast í gistiskýlum fyrir heimilislaust fólk.

Skýrt hvað kemur til endurgreiðslu

Reglurnar sem ráðuneytið hefur breytt eru nr. 520/2021 og settar á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í þeim er kveðið á um aðstoð sveitarfélaga, í sérstökum tilvikum, við erlenda ríkisborgara og endurgreiðslur úr ríkissjóði vegna þeirrar aðstoðar.

Eftir breytingarnar á reglunum er nú skýrt kveðið á um hvað komi til endurgreiðslu úr ríkissjóði vegna aðstoðar sveitarfélaga við umrædda einstaklinga á grundvelli 15. gr. laganna. Með aðstoð er átt við gistingu og fæði í samræmi við það sem almennt tíðkast í úrræðum fyrir heimilislausa hér á landi, svo sem hvað varðar hámarksdvalartíma hvers einstaklings á sólarhring í viðkomandi gistiúrræði sem og fjölda máltíða á sólarhring.

Ráðuneytið væntir góðrar samvinnu við sveitarfélögin við að tryggja umræddum einstaklingum gistingu og fæði í samræmi við framangreint. Gert er ráð fyrir að sveitarfélög geti vísað fólki til Rauða krossins í lok þessarar viku.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum