Hoppa yfir valmynd
29. september 2023 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra heimsótti nýtt færanlegt neyðarsjúkrahús fyrir Úkraínu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Hanno Pevkur, varnarmálaráðherra Eistlands, skoða færanlega neyðarsjúkrahúsið sem afhent verður Úkraínu í nóvember. - mynd

Tveggja daga opinberri vinnuheimsókn utanríkisráðherra til Eistlands lauk í dag. Í ferðinni átti hún fundi með Margus Tsahkna utanríkisráðherra og Hanno Pevkur varnarmálaráðherra. Auk þess kynnti ráðherra sér starfsemi netöryggisseturs Atlantshafsbandalagsins, sem Ísland á aðild að, í höfuðborginni Tallinn. Þá skoðaði hún uppsetningu á færanlegu neyðarsjúkrahúsi sem kostað er af íslenskum stjórnvöldum og verður afhent Úkraínu í nóvember, en sjúkrahúsið er hannað og framleitt í Eistlandi.  

Tvíhliða samskipti ríkjanna, stuðningur við Úkraínu, þróun öryggismála og vaxandi samvinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna voru efst á baugi á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með utanríkisráðherra Eistlands.  

„Eistland er eitt af okkar nánustu samstarfsríkjum. Hér nýtur Ísland mikils velvilja eins og annars staðar í Eystrasaltsríkjunum vegna framgöngu íslenskra stjórnvalda í sjálfstæðisbaráttu ríkisins í upphafi tíunda áratugarins. Þetta er samfélag sem barðist fyrir sjálfstæði sínu og hefur í kjölfarið blómstrað. Það er ekki fyrirhafnarlaus árangur en áhersla er á menntun, metnað og samkeppnishæfni hefur skilað sér í blómstrandi nýsköpunargeira sem skapar mikil verðmæti og áhugaverð störf. Fagmannleg og einörð framganga Eistlands á alþjóðavettvangi, meðal annars í Atlantshafsbandalaginu og Sameinuðu þjóðunum, vekur athygli og þá ekki síst vegna óbilandi stuðningur þeirra við varnarbaráttu Úkraínu,“ segir Þórdís Kolbrún. „Í samtölum mínum hér er áberandi áhersla á mikilvægi grundvallargilda í alþjóðamálum, virðingu fyrir alþjóðalögum, mannréttindum og réttarríkinu,“ bætir hún við. 

 Framúrskarandi samstarf sem mun koma að gagni

Á fundi utanríkisráðherra með Hanno Pevkur, varnarmálaráðherra Eistlands, voru átökin í Úkraínu, hernaðarumsvif Rússlands, varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins og undirbúningur færanlegs neyðarsjúkrahúss til Úkraínu meðal umræðuefna, en ráðherrarnir heimsóttu auk þess Tartu þar sem unnið er að uppsetningu sjúkrahússins. 

„Sjúkrahúsið mun koma að góðum notum við að bjarga lífum og lina þjáningar þeirra sem leggja líf sitt og heilsu undir til þess að verja Úkraínu gegn rússneska innrásarliðinu. Við erum þakklát fyrir að geta með þessum hætti stutt við réttmæta varnarbaráttu Úkraínu, en því fylgir auðvitað sorg að hugsa til þess óréttlætis sem úkraínska þjóðin sætir af hendi Rússlands. Við höfum unnið að þessu verkefni í framúrskarandi samstarfi við Eista og Þjóðverja, en þeir leggja til ökutæki til að flytja sjúkrahúsið milli staða, en það er mjög stórt framlag, sem við erum þakklát fyrir,“ segir Þórdís Kolbrún. 

Á næstu vikum hefst þjálfun fyrir teymi frá Úkraínu, sem kemur til með að reka spítalann. 

Að lokum heimsótti utanríkisráðherra sömuleiðis sýningu íslensku listakonunnar Hrafnhildar Arnardóttur, Shoplifter, og átti hádegisverð með Urmas Klass, borgarstjóra Tartu. 

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Hanno Pevkur, varnarmálaráðherra Eistlands. - mynd
  • Margus Tsahkna utanríkisráðherra Eistlands og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. - mynd
  • Á blaðamannafundi í utanríkisráðuneyti Eistlands. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum