Hoppa yfir valmynd
3. október 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki í þágu farsældar barna

Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni, þar á meðal menntun, frístundir, íþróttir, vernd og réttindi barna. Verkefnin skulu vera í þjónustu við börn og fjölskyldur og snúa m.a. að forvörnum, fyrirbyggjandi aðgerðum og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu, þ.m.t. börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Félagasamtök sem hljóta styrki á fjárlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum fjárlaga fyrir sömu verkefni. Um er að ræða eins skiptis styrki sem eru ætlaðir sem hluti af innleiðingu laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, þar á meðal þróun heildstæðrar skólaþjónustu og undirbúnings frumvarps að nýjum lögum þess efnis.

Styrkir eru veittir þeim sem uppfylla skilyrði til að fá styrk samkvæmt mati ráðherra, sjá reglur um styrkveitingar mennta- og barnamálaráðherra. Miðað er við að styrkfjárhæðir séu á bilinu 200.000 kr. til 3.000.000 kr., en í undantekningartilvikum er unnt að veita hærri styrki.

Sótt er um styrk á [email protected]. Frestur til að leggja fram umsókn er 25. október 2023. Umsókn skulu fylgja lýsing og upplýsingar um verkefnið, hvernig umsækjandi hyggst vinna verkefnið og hvort verkefnið hefur notið styrkja frá öðrum aðilum. Vakin er athygli á því að umsækjandi kann að þurfa að leggja fram frekari upplýsingar, m.a. um faglega hæfni og rekstrarhæfi, samkvæmt leiðbeiningum ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum