Hoppa yfir valmynd
9. október 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra friðlýsir Skrúð og staðfestir Neðstakaupstað og Skutulsfjarðareyri sem verndarsvæði í byggð á Ísafirði

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í á föstudag friðlýsingu vegna Skrúðs í Dýrafirði. Jafnframt staðfesti ráðherra að Neðstikaupstaður og Skutulsfjarðareyri á Ísafirði verði sérstakt verndarsvæði innan sveitarfélagsins.

Skrúður er skrúðgarður í stíl klassískra garða í Evrópu frá 16. og 17. öld og telst garðurinn einstakt mannvirki á íslenskan mælikvarða. Vinna hófst við Skrúð árið 1905 og voru fyrstu trén gróðursett  þar árið 1908. Friðlýsingin er gerð að tillögu Minjastofnunar Íslands og er í samræmi við ákvæði laga um menningarminjar. Þetta er fyrsta friðlýsing menningarminja frá því málaflokkurinn færðist til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Friðlýsingin tekur til Skrúðs í heild samkvæmt upphaflegu skiplagi og tegundaflóru, auk hlaðinna vegghleðslna umhverfis garðinn og innan marka hans, garðhliðs úr hvalbeini, gosbrunns og gróðurhúss og annarra sögulegra mannvirkja. Garðurinn er  2.625 m2 að stærð, 35 x 75 metrar, og miðast útmörk friðlýsingarinnar við það. Í samræmi við 22. gr. minjalaga er síðan 100 m friðhelgunarsvæði umhverfis útmörk garðsins.

Elsta standandi húsaþyrping landsins

Þá staðfesti ráðherra Neðstakaupstað og Skutulsfjarðareyri sem sérstakt verndarsvæði í byggð og varð það gert að tillögu Ísafjarðarbæjar. Neðstikaupstaður er elsta húsaþyrping landsins sem enn stendur, og er fjara sem liggur vestan við hana einnig hluti verndarsvæðisins. Húsaþyrpingin stóð upphaflega á mjóum tanga, sem var syðsti hluti Eyrarinnar, og voru húsin fjögur reist á árunum 1757 til 1784. Skutulsfjarðareyrin skiptist í Miðkaupstað og Hæstakaupstað, og er þar um að ræða samfellda og þétta byggð húsa á efra svæðinu á Eyrinni. Elst húsanna er Faktorshúsið sem reist var árið 1788.

Innan svæðanna beggja eru 11 friðlýst hús og tugir aldursfriðaðra húsa og telst heildarvarðveislugildi svæðisins hátt hvað varðar byggingalist, menningarsögu, umhverfi, upprunaleika og ástand.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er mér mikil ánægja að staðfesta tillögu sveitarfélagsins að gera þessa einstöku, sögulegu heild húsbygginga á svæðunum tveimur að verndarsvæði. Það er ekki síður ánægjulegt að friðlýsa þann einstaka og stórmerkilega skrúðgarð  sem Skrúður í Dýrafirði er. Það ber vott um mikinn metnað að garðurinn hafi haldið gildi sínu í meira ein öld.“

  • Ráðherra friðlýsir Skrúð og staðfestir Neðstakaupstað og Skutulsfjarðareyri sem verndarsvæði í byggð á Ísafirði - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum