Hoppa yfir valmynd
10. október 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Gott að eldast: Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka þátt í þróunarverkefnum

Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög munu taka þátt í þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu í sumar eftir slíku samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir. Áhugi fyrir þátttöku var mikill og hvorki fleiri né færri en 19 umsóknir bárust.

Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast en með henni taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Markmið þróunarverkefnanna er að finna góðar lausnir á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta vandlega saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin.

Valnefnd hefur nú farið yfir umsóknirnar og sex svæði verið valin til þátttöku. Þau eru:

  • Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing

  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og annars vegar sveitarfélagið Árborg og hins vegar Hveragerðisbær

  • Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og annars vegar Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (tíu sveitarfélög) og hins vegar sveitarfélagið Húnaþing vestra

  • Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis (HH) og sveitarfélagið Mosfellsbær

  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST) og sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð

  • Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og sveitarfélagið Dalvíkurbyggð

Í valnefndinni sátu þrír aðilar úr verkefnastjórn Gott að eldast, auk þess sem hvort ráðuneyti átti þar fulltrúa. Valnefndin horfði til auglýstra skilyrða fyrir þátttöku og matslista með stigagjöf sem lá fyrir og umsóknareyðublaðið byggði á.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra:

„Gott að eldast er mesta breyting á þjónustu við eldra fólk í langan tíma. Með vali á þessum sex svæðum hefst nú stærsta aðgerðin í aðgerðaáætlun verkefnisins eftir vandaðan undirbúning verkefnastjórnar. Ég er mjög ánægður með framvinduna í verkefninu og það verður sérlega spennandi að sjá árangurinn af þróunarverkefnunum og hvernig við getum yfirfært reynsluna á fleiri svæði í framtíðinni. Þetta verkefni er rétt að byrja og margt jákvætt fram undan.“

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra:

„Þjónusta heilbrigðisstofnana og sveitarfélaga við eldra fólk er oft nátengd og þörf á þjónustu frá báðum aðilum. Því skiptir miklu máli að það séu engir múrar á milli þjónustuveitenda, heldur sameinist þeir um að veita notendum samfellda og einstaklingsmiðaða þjónustu í samræmi við þarfir hvers og eins. Það er m.a. markmið áætlunarinnar Gott að eldast og ég er sannfærður um að þróunarverkefnin muni laða fram mikil tækifæri til að auka og bæta þjónustu á þessu sviði.“

Margvíslegar aðgerðir

Auk ofangreindra þróunarverkefna verður undir merkjum Gott að eldast ráðist í aðgerðir sem hverfast um heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu, sveigjanlega þjónustu og stórbættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um þjónustu fyrir eldra fólk.

Allar aðgerðir miða að því að tryggja eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst og á þeirra eigin forsendum.

 

 

Þróunarverkefnin ganga út á að flétta vandlega saman ólíka þætti þjónustunnar fyrir fólk í heimahúsum.

Úr auglýsingunni fyrir þróunarverkefnin. Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast sem samþykkt var sem þingsályktunartillaga síðastliðið vor.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum