Hoppa yfir valmynd
13. október 2023 Utanríkisráðuneytið

Gripið til aðgerða vegna gullhúðunar EES-reglna

Utanríkisráðherra hyggst skipa starfshóp til að meta umfang gullhúðunar EES-gerða og leggja til tillögur að úrbótum. Athugasemdir og dæmi um að EES-gerðir séu innleiddar með svokallaðri „gullhúðun“ hafa komið fram að undanförnu en með því er átt við það þegar stjórnvöld herða á reglum EES-gerða eða bæta við heimasmíðuðum ákvæðum í innleiðingarfrumvörp sem ekki leiða af skuldbindingum samkvæmt EES-samningnum.

„Gullhúðun leggur í senn byrðar á atvinnulífið og getur grafið undan trausti á EES-samningnum til lengri tíma litið. Nauðsynlegt er að gera úttekt á þeim tilvikum þar sem gullhúðun hefur komið upp og greina umfang hennar og til hvaða úrbóta sé hægt að grípa í einstökum tilvikum og bæta verklag. Eðli málsins samkvæmt er mikilvægt að slík úttekt verði unnin með aðkomu atvinnulífsins og óháðra sérfræðinga, enda þótt stjórnsýslan þurfi að styðja við slíka vinnu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Undanfarið hefur verið bent á dæmi þar sem innleiðing hefur verið umfram kröfur EES-reglna án þess fyrir hafi legið nægjanlegur rökstuðningur eða kostnaðarmat og atvinnulífið bent á verulegan kostnaðarauka vegna viðkomandi innleiðingar, umfram það sem nauðsynlegt hefði verið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum