Hoppa yfir valmynd
18. október 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Elísabet Dolinda verður nýr forstjóri Geislavarna ríkisins

Elísabet Dolinda Ólafsdóttir - mynd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Elísabetu Dolindu Ólafsdóttur forstjóra Geislavarna ríkisins frá 1. desember næstkomandi. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Elísabetu Dolindu mjög vel hæfa til að gegna embættinu.

Elísabet Dolinda er með meistaragráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í opinberri stjórnsýslu við sama skóla. Hún hefur starfað hjá Geislavörnum ríkisins frá árinu 1991 og komið þar að flestum þeim verkefnum sem undir stofnunina heyra, þar með talið vöktun, viðbúnaði og eftirliti með geislavirkum efnum og geislatækjum. Árið 2007 tók Elísabet Dolinda við starfi gæðastjóra stofnunarinnar. Frá árinu 2016 hefur hún gegnt starfi aðstoðarforstjóra samhliða hlutverkum gæðastjóra og starfsmannastjóra. Síðastliðna mánuði hefur hún enn fremur sinnt stöðu fjármálafulltrúa stofnunarinnar.

Með heimild í lögum nr. 70/1996 skipaði heilbrigðisráðherra þriggja manna ráðgefandi hæfnisnefnd til að meta hæfni umsækjenda um embættið. Sem fyrr segir mat nefndin Elísabetu Dolindu mjög vel hæfa og segir í álitsgerð ljóst að hún hafi alla burði til að gegna hlutverki forstjóra Geislavarna ríkisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum