Hoppa yfir valmynd
18. október 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðstefna: Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi

Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga, boðar til ráðstefnunnar Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn 20. nóvember kl. 9-16 í Gullteig á Grand Hótel Reykjavík og í streymi. Á ráðstefnunni verða kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Fulltrúar íþróttahreyfingarinnar og aðrir gestir ráðstefnunnar munu koma að mótun tillagnanna.

Hvernig skörum við fram úr?
Hvert er besta fyrirkomulagið?
Hvað getum við lært af öðrum?
Hvernig styðjum við best við afreksíþróttafólk?

Þetta eru á meðal þeirra spurninga sem starfshópur mennta- og barnamálaráðherra um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks vinnur nú að því að svara og verða til umræðu á ráðstefnunni. Vésteinn Hafsteinsson, afreksíþróttamaður, -þjálfari, nýr afreksstjóri ÍSÍ og sérfræðingur hjá ráðuneytinu, leiðir starfshópinn.

Áform um stóreflingu afreksíþróttastarfs hérlendis með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk verða kynnt á ráðstefnunni. Fjallað verður um hvernig skapa megi umgjörð fyrir unga íþróttaiðkendur til að vaxa og dafna, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. Þá mun þjóðþekkt afreksíþróttafólk koma sínum áherslum á framfæri og verður aðkoma sveitarfélaga og atvinnulífsins tekin fyrir.

„Við höfum leitt saman færa og fjölbreytta sérfræðinga víða að í þessa vinnu sem náð hafa miklum árangri í íþróttum, við þjálfun afreksíþróttafólks og við rannsóknir,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. „Við viljum nýta sérþekkinguna innan íþróttahreyfingarinnar og skólasamfélagsins til að skapa umgjörð sem er jafn góð ef ekki betri en hjá keppinautum okkar.“

Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Opið er fyrir skráningar til og með 16. nóvember.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur öll áhugasöm um árangur og afreksstarf til að mæta.

Streymi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum