Hoppa yfir valmynd
19. október 2023 Utanríkisráðuneytið

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný - myndBandaríski flugherinn
Von er á bandarískri flugsveit til landsins á morgun til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Flugsveitin kemur til landsins frá Þýskalandi, með fjórar F-16 herþotur og 120 liðsmenn.

Sveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Udem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Með fyrirvara um veður, er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 21. til 27. október.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.

Í umboði utanríkisráðuneytisins, annast varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Isavia.

Þá er ráðgert að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan nóvembermánuð.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum