Hoppa yfir valmynd
26. október 2023 Innviðaráðuneytið

Reykjalundur vígir ramp númer 900

Valgerður Karlsdóttir, íbúi á Hlein, klippir á borðann - myndÓlína Kristín Margeirsdóttir

Rampur númer 900 í verkefninu Römpum upp Ísland var vígður við hátíðlega athöfn á Reykjalundi í Mosfellsbæ í gær. Vígsla rampsins markar tímamót í verkefninu, en markmiðið er að setja upp 1500 rampa fyrir 11. mars 2025 í þágu hreyfihamlaðra.

Margir rampar voru byggðir fyrir endurhæfingarmiðstöðina á Reykjalundi og hjúkrunarsambýlið Hlein sem staðsett er á lóð Reykjalundar. Það var Valgerður Karlsdóttir, íbúi á Hlein, sem fékk heiðurinn af því að klippa á borðann við góðar undirtektir athafnargesta.

Pétur Magnússon, forstjóri Reykjalundar, var viðstaddur vígsluna og lýsti yfir mikilli ánægju sinni með verkefnið. „Við erum mjög þakklát fyrir hlýhug í okkar garð, þetta hefur mjög mikið að segja og við metum þetta mikils, þó að aðgengið hafi verið gott þá er alltaf hægt að gera betur og við fögnum því,“ sagði Pétur.

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, var meðal gesta á athöfninni og kvaðst gríðarlega ánægð með þau skref sem verið væri að taka í Reykjalundi. „Með uppsetningu rampanna er verið að bæta aðgengi víða um Mosfellsbæ í samvinnu við Römpum upp Ísland,“ sagði Regína.

Athafnamaðurinn Haraldur Þorleifsson upphafsmaður rampaverkefnisins var einnig viðstaddur athöfnina. Í ávarpi sínu sagði Haraldur frá því að hann hafi komið á Reykjalund fyrir 20 árum þegar hann byrjaði að nota hjólastól. „Fólkið sem tók á móti mér hjálpaði mér á ómetanlegan hátt í gegnum mjög erfitt tímabil. Það má alltaf gera gott betra og ég er ótrúlega þakklátur að við gátum hjálpað til að bæta aðgengi á þessum yndislega og fallega stað.”

Nánar um verkefnið

Verkefnið Römpum upp Ísland hefur þann mikilvæga tilgang að greiða aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, afþreyingu og þátttöku og stuðlar þannig að auknu jafnrétti. Römpunum er ætlað að veita hreyfihömluðum aukið aðgengi að samfélaginu en stofnaður var sjóður með aðkomu fyrirtækja og opinberra aðila sem stendur straum af kostnaðinum við gerð rampanna.

Verkefnið Römpum upp Ísland hefur nú reist 900 rampa, á undan áætlun, en sá fyrsti var tekinn í notkun í maí 2021. Upphaflega var stefnt að því að reisa 1000 rampa, en nú er markmiðið að byggja 1500 rampa. Að verkefninu koma margir styrktaraðilar, þeirra á meðal eru innviðaráðuneytið, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, ÖBÍ, Sjálfsbjörg, Ueno, Össur, Deloitte, Brandenburg, Aton.JL, Lex lögmannsstofa, BM Vallá, Icelandair, Orkan og ÞG Verk auk sveitarfélaga á hverjum stað.

  • Þorleifur Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Römpum upp Ísland, Valgerður Karlsdóttir íbúi á Hlein, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Pétur Magnússon forstjóri Reykjalundar, Haraldur Þorleifsson athafnamaður og forsprakki Römpum upp Ísland ásamt Grétu Salóme tónlistarkonu.  - mynd
  • Athafnargestir við vígslu rampsins - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum