Hoppa yfir valmynd
30. október 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hlýtur styrk í tilefni af 30 ára afmæli

Frá undirritun samningsins.  - myndUnnur Anna Árnadóttir

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á 30 ára afmæli um þessar mundir. Að því tilefni var undirritaður sérstakur styrktarsamningur við starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Menningar- og viðskiptaráðuneytið og innviðaráðuneytið veita Menningarfélagi Akureyrar styrkinn en honum er ætlað að efla skapandi greinar á Norðurlandi með því að styrkja landshlutann sem atvinnusvæði fyrir hljóðfæraleikara.

„Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með vexti og uppgangi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á síðustu árum. Stjórnvöld hafa það að markmiði að skapa menningu sterka umgjörð um allt land og auka aðgengi landsmanna allra að menningu. Ég óska Norðlendingum til hamingju með 30 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

„Hljómsveitin hefur verið kyndilberi klassískrar tónlistar í landshlutanum og stuðlað að frumflutningi á nýrri íslenskri sinfónískri tónlist. Hún hefur einnig verið tákn fyrir frumkvöðlastarfsemi og uppbyggingu nýrra atvinnumöguleika fyrir klassíska hljóðfæraleikara og sérhæft tæknifólk utan höfuðborgarinnar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.

Heildargreiðsla menningar- og viðskiptaráðuneytisins og innviðaráðuneytis til Menningarfélags Akureyrar á grundvelli samningsins er tíu milljónir á ári í þrjú ár.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands var stofnuð árið 1993 og hefur vaxið mikið undanfarin ár, sem hluti af rekstri Menningarfélags Akureyrar. Hefur sinfóníuhljómsveitin meðal annars unnið að því að skapa aukin atvinnutækifæri fyrir hljóðfæraleikara á Norðurlandi og sótt fram á erlendri grundu með útflutningi á alþjóðlegri kvikmyndatónlist sem tekin er upp í Hofi.

Ný harpa fyrir kennslu og tónleikahald

Um helgina hélt Sinfoníuhljómsveit Norðurlands sérstaka hátíðartónleika í tilefni af 30 ára afmælinu. Þar var flutt þekktasta sinfónía tónlistarsögunnar, 9. sinfónía Beethovens eða Óðurinn til gleðinnar.

Í tilefni af afmælinu verður Menningarfélagi Akureyrar og Tónlistarskóla Akureyrar færð harpa að gjöf. Ríkisstjórnin og Akureyrarbær taka þátt í gjöfinni og leggja til alls þrjár milljónir í sameiningu til kaupa á hörpu sem mun bæði nýtast í kennslu og tónleikahald. Slíkt samstarf á að tryggja stöðugt viðhald og eftirlit með hljóðfærinu.


  • MAK - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum